Össur: „Kreppan er frá“

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að ríkisstjórninni hafi tekist að koma af stað einkaneyslu. Efnahagssamdrættinum sé lokið og kreppan frá. Þingmaður Framsóknar segir ályktanir ASÍ um vanefndir ríkisstjórnarinnar áfellisdóm yfir ríkisstjórninni.

Alþingismenn fengu í gær skýrslu með ályktunum sautján aðildarfélaga ASÍ um vanefndir ríkisstjórnarinnar. Hún ber heitið Pacta Sunt Servanda eða samningar skulu standa og kom út 20. janúar síðastliðinn, daginn sem kjarasamningar voru endurskoðaðir. Vigdís Hauksdóttir vakti athygli á skýrslunni við upphaf þingfundar í morgun. „ASÍ og stéttarfélög innan ASÍ eru búin að fá sig fullsadda þetta er áfellisdómur yfir ríkisstjórninni og henni ber að fara frá,“ sagði Vigdís.  

Þetta kom fram í umræðum um störf þingsins. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók þátt í þeim og hann sagði engan bilbug á ríkisstjórninni. Honum fannst lítill vindur í stjórnarandstöðunni sem væri gjörsamlega úr tengslum við veruleikann.

„Það sem að þessari ríkisstjórn hefur tekist er að koma af stað einkaneyslu og það hefur gerst á sama tíma og skuldir landsmanna innanlands hafa minnkað og skuldir þeirra erlendis hafa minnkað,“ sagði Össur og kvaðst líta björtum augum til framtíðarinnar. „Og ég segi það algjörlega skýrt: Að mínu viti er efnahagssamdrættinum lokið, kreppan er frá. Á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar þá blasir það við að það er búið að moka út úr Ágíasar fjósi framsóknar og sjálfstæðisflokks sem það tók þá flokka næstum því 18 ár að fylla.“

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði þetta út í bláinn. „Hæstvirkur utanríkisráðherra er lítillátur maður og kýs því að gleyma sex árum sem hann sat í ríkisstjórn, þar á meðal þeim tveimur síðustu fyrir hrun. Ég ætla ekki að halda því gegn honum enda held ég að punkturinn sem hann kom með sé í sjálfu sér út í bláinn.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku