Umboðsmaður Alþingis hefur í dag ritað innanríkisráðherra bréf og óskað eftir tilteknum upplýsingum um samskipti hans við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um lögreglurannsókn sem embætti hans vann að er beindist að meðferð trúnaðarupplýsinga í innanríkisráðuneytinu.

Þetta kemur fram á vef Umboðsmanns Alþingis.  

Í bréfi umboðsmanns eru tvær spurningar. Hvort Hanna Birna hafi að eigin frumkvæði óskað eftir að Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, kæmi til fundar/viðtals við ráðherrann í ráðuneytinu „þar sem þér rædduð við hann um lögreglurannsókn sem embætti hans vann að á sama tíma og beinist að meðferð tiltekinna trúnaðarupplýsinga sem voru til staðar í innanríkisráðuneytinu.“

Umboðsmaður óskar eftir að fram komi hvert var tilefni þessara funda/viðtala, hvenær þau fóru fram og þá er ráðherra beðinn um að lýsa hvað kom fram af hans hálfu í samtölum við Stefán um rannsóknina og starfshætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu af því tilefni. Þá óskar umboðsmaður eftir því að tiltæk gögn um þessi samskipti verði send honum.

Umboðsmaður Alþingis óskar enn fremur eftir upplýsingum um símtöl sem  „þér kunnið að hafa átt við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu þar sem þér rædduð um áðurnefnda lögreglurannsókn. Óskað er eftir að fram komi hvenær samtölin fóru fram, hvert var tilefni þeirra og hvað kom þar fram af yðar hálfu um rannsóknina. Óskað er eftir að tiltæk gögn um þessi símtöl verði send mér.“

Í bréfinu segir jafnframt að beiðni umboðsmannsins sé sett fram til þess að hann geti tekið afstöðu til þess hvort hann taki málið til formlegrar athugaunar með hliðsjón af þeim reglum og sjónarmiðum sem talin eru eiga við um samskipti ráðherra „sem fer með yfirstjórn lögreglu við stjórnendur lögregluembætta með tilliti til sjálfstæðis þeirra embætta og ákæruvalds við rannsókn sakamála. Það á sérstaklega við þegar umrædd rannsókn tengist málefnum ráðuneytis viðkomandi ráðherra.“

Umboðsmaður Alþingis gefur Hönnu Birnu tækifæri til 15.ágúst til að svara þessari fyrirspurn.