„Ég var hissa á niðurstöðu dómnefndar. Mér fannst allir þrír umsækjendur afskaplega hæfir,“ segir Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, um skipan Karls Axelssonar í stöðu hæstaréttadómara.
Innanríkisráðuneytið hefur bent á að skipan hans í stöðu dómara brjóti í bága við jafnréttislög, en einungis einn af níu dómurum Hæstaréttar er kona. „Þessar reglur um skipan dómara eru ekki nýjar af nálinni, þær eru frá 2010. Öðru hvoru hafa komið upp spurningar hvort það sé ástæða til að skoða þetta ferli upp á nýtt. Hvort að það sé sjónarmið uppi um að ráðherra hafi úr einhverju að spila þegar verið er að velja."
„Þarna erum við að tala um afskaplega hæft fólk sem þarna sækir um. Mér finnst þetta benda til þess að það sé ekki úr vegi að endurskoða reglur um skipan dómara,“ segir Ólöf.
Ráðuneytið hefur engin áhrif á hverjir skipa svokallaða hæfisnefnd um skipan dómara. Hana skipa eingöngu karlar. „Mér finnst þessi skipan mála ansi óheppileg. Það vill þannig til í þessu tilviki að konur eru varamenn í nefndinni en karlar aðalmenn.“
Nánar er rætt við Ólöfu í spilaranum hér að ofan, en einnig verður fjallað um málið í fréttum sjónvarps í kvöld.