Ung kona á Flateyri, sem er á batavegi eftir heilablæðingu, segist gráta við tilhugsunina um það þegar hún gat sagt öllum að hún væri heil. Við blæðinguna missti hún talfærni og gat ekki tjáð sig fyrr en hún fékk stafaspjald hjá talmeinafræðingi.

Tvær heilablæðingar og blóðtappi

Katrín Björk Guðjónsdóttir er 24 ára Flateyringur. Undanfarin ár hefur Katrín bloggað um bataferli sitt eftir tvær heilablæðingar og blóðtappa. Í tilefni af evrópska talþjálfunardeginum, fyrr í vikunni, greindi Katrín frá frelsinu sem talþjálfun hefur veitt henni. „Eftir stóru blæðinguna þá gat ég ekki gert neitt. Ég lá í öndunarvél og opnaði bara hægra augað,“ segir Katrín. „En hugsunin mín var heil.“

Heimsókn talmeinafræðings breytti öllu

Í sex vikur vissu aðstandendur Katrínar ekki hvort að blæðingin hefði haft áhrif á huga hennar. „Mér leið eins og ég væri lokuðu inni í kassa og ég gat bara hlustað á alla í kringum mig.“ Heimsókn talmeinafræðings breytti öllu. „Það var þegar spjaldið kom,“ segir Katrín Björk.

Gat sagt ástvinum sínum að hún væri heil

Fyrst með augunum, en nú með vinstri hendi, getur Katrín stafað með spjaldinu og hljómlausir stafir ljá henni rödd.  Hvernig tilfinning var það? „Það var sú besta og mesta frelsisgjöf. Ég bara græt við tilfinninguna, það var svo gaman að segja öllum að hugsun mín hefði verið heil allan tímann.“

Hægt er að horfa á ítarlegra viðtal og umfjöllun í Kastljósi hér að neðan.