Mikið tap vegna Baugs og Existu

Skýrsla nefndarinnar. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.
Meira en helmingur þess sem lífeyrissjóðirnir töpuðu var vegna viðskipta við tvær fyrirtækjablokkir sem annars vegar hverfast um Existu og hins vegar Baug. Tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins er um 480 milljarðar króna samkvæmt skýrslunni sem kynnt var í dag.
Lang mestu, eða um 200 milljörðum, töpuðu lífeyrissjóðirnir þegar hlutabréf þeirra í íslensku bönkunum urðu verðlaus við hrunið. Skuldabréf, útgefin af bönkum og sparisjóðum urðu líka minna virði en pappírinn sem þau eru prentuð á, svo brugðið sé upp myndlíkingu. Þar var tapið 100 milljarðar. Skuldabréf fyrirtækja sem orðin eru verðlaus útskýra síðan 90 milljarða af tapinu. Stór hluti þessara fyrirtækja tengjast Existu þeirra Bakkavararbræðra, Ágústi og Lýði Guðmundssonum.
Tapið vegna þessara þriggja stærstu liða, hlutabréfanna og skuldabréfanna á íslenska banka og fyrirtæki, er rétt um 390 milljarðar. Þar af eru rúmlega 170 milljarðar vegna fyrirtækja þar sem Bakkavararbræður réðu ríkjum, Existu, Kaupþings, Bakkavarar og fleiri. Nærri 80 milljarðar af þessu eru vegna fyrirtækja sem skilgreind eru í skýrslunni sem hluti af baugsveldi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Glitnis, landic, Stoða (sem áður hét FL-Group), Mosaic fashion, Baugs og fleiri. Samanlagt mætti því skrifa um 250 milljarða af hruntapi lífeyrissjóðanna á reykning þessara fáu útrásarvíkinga.
Þessu til viðbótar öllu saman töpuðust svo um 50 milljarðar á alls kyns sjóðum og erlendum hlutabréfum, og um 36 milljarðar á svokölluðum gjaldeyrisvarnarsamningum.
Skýrsluna má nálgast á vef Landssamtaka lífeyrissjóða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Stjórnir lífeyrissjóðanna meðvirkar
Tapið meira en útgjöld ríkisins
Kynna skýrslu um lífeyrissjóðina





