Mataræðið þokast í rétta átt

Íslendingar eiga enn langt í land með að borða nægilega mikið af ávöxtum, grænmeti og grófu brauði. Mataræðið hefur þó þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði samkvæmt nýrri könnun Landlæknis og lýðheilsustöðvar.

Sambærileg könnun var gerð árið 2002. Neysla á harðri fitu og viðbættum sykri hefur minnkað og meira er borðað af grænmeti, ávöxtum og grófu brauði. Fleiri taka lýsi. Neysla á D vítamíni er þó langt undir ráðleggingum hjá þorra þjóðarinnar og öllum þeim sem ekki taka lýsi eða aðra vítamíngjafa að staðaldri. Neysla kvenna á fólati og járni er einnig undir ráðleggingum. Neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur minnkað en meira er drukkið af sykurlausum gosdrykkjum. Ungt fólk sem drekkur sykrað gos oftar en tvisvar í viku fær mun meira af viðbættum sykri en ráðlagt er.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku