Margt hefur áunnist á Haíti

Tvö ár eru í dag frá jarðskjálftanum mikla á Haíti. Þótt enn sé mikið uppbyggingastarf framundan hefur margt áunnist. Barnavernd hefur batnað til muna og fleiri börn ganga í skóla nú en fyrir skjálftann.

Haítíbúar glíma enn við gríðarmörg vandamál eftir hamfarirnar. 230 þúsund manns fórust í skjálftanum og meira en 1,5 milljón manna stóð uppi heimilislaus. Haítíbúar minntust jarðskjálftans í gær og mótmæltu því að enn hafast þúsundir við í tjaldbúðum. En þrátt fyrir allt hefur ýmislegt snúist til betri vegar að sögn Sigríðar Víðis Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa UNICEF, sem nýlega heimsótti landið.

Barnaverndarmál hafa batnað til muna. Til dæmis hefur mikil áhersla verið lögð á að vinna gegn mansali á börnum. Mun erfiðara er að fara ólöglega með börn úr landi nú en fyrir skjálftann. Áður vissi enginn hversu mörg börn væri að finna á munaðarleysingjahælum eða hvar þau væri að finna. Nú hefur náðst að skrá fjölda barna og stjórnvöld gert gert endurbætur á lögum um ættleiðingar. UNICEF hefur hjálpað yfir 2000 börnum að sameinast fjölskyldum sínum á ný.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Hamfarir

Tilkynna um bilaða upptöku