Margra saknað á Filippseyjum

Björgunarmenn leita enn að fólki sem saknað er eftir jarðskjálftann sem reið yfir í sundinu milli eyjanna Negros og Cebu á Filippseyjum í gær.
Skjálftinn var 6,8 að stærð. Yfir 700 eftirskjálftar hafa mælst og valda sífelldri skelfingu meðal íbúanna. 43 hafa fundist látnir eftir skjálftann. Óttast er að mun fleiri hafi farist. Björgunarmenn komast ekki til afskekktra staða þar sem brýr eru skemmdar og vegir lokaðir vegna skriðufalla. Sums staðar er símasamband rofið. Upptök skjálftans voru um 50 kílómetra frá borginni Cebu, næst stærstu borg Filippseyja með 2,3 miljónir íbúa. Þar lék allt á reiðiskjálfi en ekki er vitað til þess að neinn hafi látið lífið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







