Mannskæður júlí-mánuður í Sýrlandi

Mannskæður júlímán


  • Prenta
  • Senda frétt

Sendiherra Frakka hjá Sameinuðu þjóðunum sagði í útvarpsviðtali í dag að Frakkar hygðust nýta sér formennsku sína í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að þrýsta á að ráðið kæmi sýrlenskum almenningi til hjálpar en Frakkar tóku við formennsku í öryggisráðinu 1.ágúst.

Gerard Araud sagði við útvarpsstöðina Europe 1 Radio að héldu Rússar og Kínverjar áfram að beita neitunarvaldi sínu gagnvart aðgerðum ráðsins myndi það hafa skelfilegar afleiðingar yfir íbúa Sýrlands. 

21 þúsund hafa fallið frá því að átökin í landinu hófust í mars á síðasta ári og var júlí-mánuður sá mannskæðasti. Rúmlega fjögur þúsund létu lífið, að sögn sýrlenskra mannréttindasamtaka, um þúsund í hverri viku. Talið er að þrjú þúsund almennir borgarar hafi fallið í átökunum, meðal þeirra eru hins vegar menn sem hafa gripið til vopna. Þá hafa rúmlega þúsund hermenn í sýrlenska stjórnarhernum týnt lífi í átökunum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku