Maður sóttur í Esjuhlíðar

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF Gná, lenti við Landspítalann í Fossvogi, laust upp úr þrjú, með vélsleðamann sem slasaðist í Esjuhlíðum. Átta vélsleðamenn úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar sinntu aðgerðum á slysstað.

 Maðurinn féll af sleða sínum á ferð upp úr hádegi. Hann var með meðvitund, en  kvartaði undan eymslum á hálsi og í baki. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru.  Björgunarsveitarmenn aðstoða nú ferðafélaga þess slasaða við að koma sér til byggða.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku