Lopapeysuforrit útgerðarstjórans

Á vefsíðunni prjonamunstur.is er hægt að hanna lopapeysu á einfaldan hátt.
Sverrir Pétursson, útgerðarstjóri á Ísafirði, gerir ekki bara út skuttogara. Hann er einnig í útgerð á internetinu því í tæpt ár hefur hann haldið úti vefsíðunni prjónamunstur.is þar sem notendur geta hannað sína eigin lopapeysu.
Brennandi áhugi Sverris á tölvum og þrívíddargrafík varð til þess að hann lærði kerfisfræði í fjarnámi við HR. En það var mikill prjónáhugi eiginkonu hans og dóttur sem varð til þess að hugbúnaðargerðin tók þá stefnu að Sverrir hannaði þetta lopapeysuforrit og setti það á netið. En internetið á sér engin landamæri og nú fær vefsíðan um tvöhundruð heimsóknir á dag allsstaðar að úr heiminum og hefur verið þýdd á sjö tungumál. Og Sverrir rak upp stór augu þegar úkraínskar prjónakonur voru farnar að spjalla um prjónamunstur.is.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







