Landsdómsmálið lagt í dóm - samantekt

Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. Mynd: Tryggvi Aðalbjörnsson.


  • Prenta
  • Senda frétt

Málflutningi í landsdómsmálinu lauk í dag og hefur málið verið dómtekið. Geir H. Haarde segist ekki kvíða niðurstöðu landsdóms, hann sé saklaus af öllum ákæruliðum.

Andri Árnason, verjandi Geirs, ræddi eftir hádegið um Icesave-reikningana í Bretlandi og sagði að aldrei hefði komið til tals fyrr en í lok ágúst 2008 að stjórnvöld kæmu að flutningi þeirra yfir í dótturfélag. Það hafi þá ekki verið á verksviði Geirs heldur Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra.

Geir er einnig ákærður fyrir að halda ekki ráðherrafundi um stöðu fjármálakerfisins. Andri sagði að rætt hefði verið um efnahagsmál í ríkisstjórn þó að það hafi ekki verið á formlegri dagskrá fundanna. Þá sé refsiheimild fyrir brot af þessu tagi ekki skýr. 

Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari Alþingis svaraði í seinni ræðu sinni gagnrýni Andra um að þáverandi seðlabankastjórar og forstjóri Fjármálaeftirlitsins væru ekki ákærðir, heldur aðeins Geir. Sigríður benti á að sérstök lög giltu um ábyrgð ráðherra og ekki væri hægt að breyta fyrri ákvörðun um að ákæra ekki embættismennina. Andri sagði svo í andsvari sínu að lög um landsdóm væru úrelt og brytu í bága við lög um réttláta málsmeðferð.

Geir H. Haarde sagðist að loknum málflutningi feginn að þessum þætti málsins væri lokið. „Nú tekur dómstóllinn málið í sínar hendur og leggur mat á það hvort ég hafi framið refsiverð afbrot í mínum störfum. Það er það sem þetta mál snýst um og ekkert annað. Ég treysti þessum dómstóli fyllilega til þess að ráða fram úr því,“ sagði Geir. 

Hann sagði réttarhaldið hafa verið lærdómsríkt. „En ég geri ráð fyrir því að ýmsir sem að stóðu að þessum ákærum og þessum réttarhöldum hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með margt af því sem hér hefur komið fram. Og ég mun bíða úrslita þessa máls alveg ókvíðinn. Ég er saklaus af þessum ákæruliðum öllum saman og ég er bjartsýnn hvað varðar niðurstöðu dómsins,“ sagði Geir.

Ekki er ljóst hvenær dómur verður kveðinn upp, en forseti landsdóms sagði aðeins að tilkynnt yrði um það með nægum fyrirvara.

Þá verður að teljast líklegt að dómararnir fimmtán sem skipa landsdóm verði ekki samhljóða í niðurstöðu sinni. Til að mynda vildi einn dómari vísa málinu alfarið frá þegar frávísunarkrafa verjandans var tekin fyrir en niðurstaðan varð sú að tveimur liðum af sex var vísað frá.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku