Kosið um stjórnarskrárákvæði í júní

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir
Einstök álitaefni nýrrar stjórnarskrár verða borin undir þjóðina í atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum í sumar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að þessu en ekki er talið að náist að fullvinna stjórnarskrárfrumvarpið í tæka tíð fyrir kosningarnar.
Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.
Bæði Álfheiður Ingadóttir og Róbert Marshall, varaformenn nefndarinnar, telja að hægt verði að fá fram viðhorf þjóðarinnar til mikilvægustu greina stjórnarskrárinnar með atkvæðagreiðslu og meðal þess sem þau telja að hægt verði að greiða atkvæði um eru mál er varða forsetaembættið, samband ríkis og kirkju og eignarhald auðlinda.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefndinni, Birgir Ármannsson, segir tillögurnar hins vegar þurfa mun meiri vinnu en svo, að hægt verði að greiða atkvæði um einstök atriði strax í júní.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







