Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2018 hafa rétt í þessu verið veitt leikstjóranum Benedikt Erlingssyni, handritshöfundunum Benedikt Erlingssyni og Ólafi Agli Egilssyni, ásamt framleiðendunum Marianne Slot, Benedikt Erlingssyni og Carine Leblanc, fyrir íslensku kvikmyndina Kona fer í stríð.

Þetta er í annað skiptið sem Benedikt Erlingsson hlýtur verðlaunin eftirsóttu fyrir bæði leikstjórn og handrit, en það er einungis hinn danski Thomas Vinterberg sem getur státað af slíkum árangri en hann hlaut verðlaunin bæði fyrir Submarino árið 2010 og svo aftur fyrir Jagten árið 2013.

Verðlaunaféð nemur 350 þúsund dönskum krónum sem skiptist jafnt milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda, sem undirstrikar að kvikmyndagerð sem listgrein er fyrst og fremst afurð náins samspils þessarra þriggja samstarfsaðila.

Kona fer í stríð fjallar um Höllu sem er sjálfstæð kona á fimmtugsaldri og virðist lifa rólyndislegu lífi á yfirborðinu, en á bak við tjöldin lifir hún tvöföldu lífi sem virkur aðgerðasinni sem brennur fyrir umhverfismálum og hefur upp á sitt einsdæmi sagt áliðnaði á Íslandi leynilegt stríð á hendur. Við undirbúning stærstu og djörfustu aðgerðar ferils síns til þessa, berst henni óvænt bréf sem breytir öllu. 

Rökstuðningur dómnefndarinnar fyrir þeirra vali 2018 er eftirfarandi:

„Í KONA FER Í STRÍÐ er alvarlegum og brýnum vanda miðlað gegnum sterkan persónuleika sem gefst ekki upp. Halla, konan sem tekur lögin í sínar hendur til að vernda vistkerfi jarðarinnar, er leikin af Halldóru Geirharðsdóttur sem sýnir afburðagóða og agaða frammistöðu. (...) Raunar má segja að Benedikt Erlingsson, sem leikstýrði myndinni og skrifaði einnig handrit ásamt Ólafi Egilssyni, sýni jafnmikla dirfsku og aðalpersóna myndarinnar. Dómnefndin kann vel að meta það sjálfsöryggi sem Benedikt sýnir þegar hann fléttar sérstöku andrúmslofti framandgervingar inn í spennuþrungin atriði og innileg augnablik með því að hafa lifandi tónlistarflutning í mynd og láta hljóðfæraleikarana túlka skap- og tilfinningasveiflur persónanna. Útkoman er frábær kvikmynd sem er leiftrandi skemmtileg í meðferð sinni á hápólitísku viðfangsefni, svo og einkalífi 48 ára gamallar konu sem er hin óvænta hasarhetja myndarinnar.“

Benedikt Erlingsson (f. 1969) er leikstjóri, handritshöfundur, leikari og framleiðandi. Hann hefur getið sér gott orð fyrir leikstjórn á sviði og einnig fyrir leik sinn í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Fyrsta myndin sem hann skrifaði og leikstýrði í fullri lengd, HROSS Í OSS, hlaut yfir 20 alþjóðleg verðlaun, þar á meðal kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2014. KONA FER Í STRÍÐ var heimsfrumsýnd á Critics‘ Week í Cannes árið 2018 og vann þar til SADC-verðlaunanna fyrir besta handrit. 

Kona fer í stríð er 15. handhafi Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, ein virtustu kvikmyndaverðlaun á Norðurlöndunum. Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru afhent samhliða öðrum verðlaunum Norðurlandaráðs: bókmenntaverðlaun, barna- og unglingabókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun ásamt umhverfisverðlaun, við hátíðlega verðlaunaathöfn sem haldin var í tengslum við 70. ársþing Norðurlandaráðs í Osló.