Íslendingar flýja Malmö

Íbúar Malmö mótmæla ofbeldi.
Sænska lögreglan hefur mikinn viðbúnað eftir að öflug sprengja var sprengd við lögreglustöð í miðborg Malmö í Suður-Svíþjóð í nótt. Skömmu áður var maður skotinn til bana í borginni. Hann er áttundi maðurinn sem skotinn er í Malmö frá því í maí í fyrra og sjötta morðið á tveimur mánuðum.
Nokkur hundruð Íslendingar búa í Malmö og næsta nágrenni. Þeir hafa áhyggjur af ástandinu og sumir hafa flutt frá borginni vegna þess. Ásbjörn Ásbjörnsson hefur búið í Malmö frá 1995 og er í stjórn Íslendingafélagsins þar. Hann segir að Íslendingunum í borginni standi ekki lengur á sama.
„Fólk er orðið nokkuð hrætt. Hrætt við að vera á vitlausum stað á vitlausum tíma. Þetta getur gerst hvar og hvenær sem er. Það eru viss svæði í Malmö sem maður heldur sig frá. Þar sem líkurnar á að svona gerist eru meiri en annars staðar. En nú er þetta að breiðast út og bráðum þannig að fólk er hvergi óhult,“ segir Ásbjörn.
Af þeim sökum segir Ásbjörn að fólk með börn þori ekki að hleypa þeim út eftir myrkur og vilji helst ekki að krakkar séu eftirlitslausir utan dyra yfir hábjartan daginn heldur. Sumir hafa jafnvel flúið borgina.
„Ég er fluttur. Ég bý í þorpi 35 kílómetra fyrir utan Malmö. Það eru margir sem gera þetta, hef ég heyrt. Nánir vinir og vinnufélagar hafa flutt frá Malmö,“ segir Ásbjörn og bætir við: „Þetta er ungt fólk sem er að stofna fjölskyldu og það vill maður ekki í svona ástandi.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Sprengjuárás og morð í Malmö





