Fimm hljómsveitir, sem eiga að spila á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, segja í sameiginlegri yfirlýsingu, að í ljósi orðræðu og verklags lögreglustjórans í Vestmannaeyjum undanfarna daga sjái þær ekki annan kost í stöðunni en að draga sig út úr dagskrá Þjóðhátíðar í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum. Kynferðisbrot eigi aldrei að þagga niður.
Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas áttu öll að koma fram á Þjóðhátíð. Þau segjast ekki geta gert það, sem flytjendur og listamenn, vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafi ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það.
Yfirlýsing þeirra félaga er svohljóðandi:
Okkur blöskra viðbrögð yfirvalda í Vestmanneyjum við háværum kröfum samfélagsins undanfarna daga. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er frábær hátíð en kynferðisbrot á aldrei að þagga niður.
Þjóðhátið, Vestmanneyingar og við öll eigum að úthýsa kynferðisofbeldi með öllum tiltækum ráðum.
Í ljósi orðræðu og verklags lögreglustjórans í Vestmanneyjum undanfarna daga sem gengur þvert á þöggunarumræðuna sem hefur átt sér stað undanfarin ár í íslensku samfélagi, sjáum við okkur ekki annan kost í stöðunni en að draga okkur úr dagskrá Þjóðhátíðar í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum og lögreglustjóra og það strax.
Við getum ekki, sem flytjendur og listamenn á þessari hátið, komið fram vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafa ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það.
Okkar krafa er sú að lögregluyfirvöld í Vestmanneyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust.
Og þá tala ég fyrir hönd eftirfarandi hljómsveita:
Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas.
Kær kveðja Strákarnir