Hörkufrost verður um allt land

Mynd:Shutterstock

Spáð er hörkufrosti um land allt á næstu dögum. Ráðlegt er að hafa frostlög við hendina, því að algengt er að bílvélar skemmist og lagnir springi í slíku veðri.

Þótt eitthvað hafi hlánað á landinu sunnanverðu í nótt, er kólnandi veður í vændum. Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur, segir að spár bendi til þess að kuldinn verði mestur á miðvikudaginn, og fari þá niður í 15 stiga frost á höfuðborgarsvæðinu og 20 stiga frost á Blönduósi.

Tveggja stafa tölur verði í flestum landshlutum og mjög líklegt að frostið fari upp fyrir 20 stig sumstaðar. Þessi frostakafli muni endast marga daga og í mestu frostunum verði yfirleitt logn og stillur, en það hvessi inn á milli. Það muni líklega snjóa eitthvað í flestum landshlutum.

Landsmenn þurfa að huga að fleiru en hlífðarfatnaði í slíku veðri. Haraldur segir að töluverð hætta sé á að það frjósi í kælikerfum og ofnum þar sem ekki sé frostlögur sem þoli töluvert frost. Það eigi bæði við um vélar og hús og það sé full ástæða til að hvetja fólk til að fylgjast með eigum sínum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku