Hildur Knútsdóttir hlýtur barnabókaverðlaun Reykjavíkur fyrir bókina Ljónið. Borgarstjóri veitti verðlaunin í Höfða en þetta er í 47. sinn sem þau eru veitt.

Guðni Kolbeinsson fékk verðlaun fyrir bestu þýðingu fyrir bókina Villimærina fögru og Rán Flygenring fékk verðlaun fyrir myndskreytingar í bókinni Sögunni um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins, sem hún gerði með Hjörleifi Hjartarsyni. 

Bergrún Íris Sævarsdóttir fékk svo verðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir óbirt handrit að barna- og unglingasögu fyrir bókina Kennarinn sem hvarf.