Gert við Þór í Noregi

Varpskipið Þór við upphaf ferðar. Mynd: Björn Malmquist.

Varðskipið Þór lagði úr höfn í Reykjavík upp úr hádegi í dag áleiðis til Björgvinjar í Noregi. Þar á að að gera við aðalvél skipsins, sem hefur verið í ólagi frá því að skipinu var siglt frá Síle.

Rolls Royce, framleiðandi vélarinnar, ákvað að skipið færi í viðgerð í Noregi. Áætlað er að það komi þangað  á miðvikudaginn og að  viðgerðin taki um einn mánuð. Landhelgisgæslan mun ekki bera neinn kostnað af viðgerðinni, því enn er ábyrgð á vélinni. Áætlanir Gæslunnar gera ráð fyrir að hverju sinni sé eitt varðskip á sjó við landið.  Ráðststafanir verða gerðar til þess að Týr og Ægir  sinni hlutverki Þórs á meðan hann er í Noregi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku