Nokkur hundruð manns gengu í hádeginu af fundi með Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra til að láta í ljós óánægju með vegabætur á Vestfjarðarvegi. Á fundinum, sem haldinn var í félagsheimilinu á Patreksfirði, var lesin upp yfirlýsing frá íbúum þar sem þeir höfnuðu nýrri fjallvegaleið. Talið er að
Innanríkisráðherra kom til fundarins til að ræða við íbúa á svæðinu um vegabætur. Gísli Einarsson, fréttamaður RÚV, var á fundinum. Hann segir að mikill hiti hafi verið í fundarmönnum. Innanríkisráðherra hafi sagt í upphafi fundar að hann veigraði sér við að ávarpa samkomuna með orðunum „Góðir hálsar“. Það hafi ekki fallið í frjóan jarðveg. Þeir fundarmenn sem hafi tekið hvað sterkast til orða hafi sagt að Ögmundur væri kominn til Patreksfjarðar til að leggja niður byggð á sunnanverðum Vestfjörðum.
Eftir að sveitarstjórar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar hafi lokið máli sínu hafi Haukur Már Sigurðsson, kaupmaður á Paterksfirði, legið upp yfirlýsingu frá íbúum þar sem sagði að þeir myndu halda áfram að berjast fyrir láglendisleið á svæðinu. Haukur Már hvatti síðan íbúa til að sýna hug sinn í verki og ganga út úr salnum. Það hafi þrír fjórðu fundarmanna gert. Þá hafi um hundrað manns verið eftir og fundurinn haldið áfram.