Forkosningar hjá repúblíkönum í dag

Forkosningar eru hjá repúblíkönum í Colorado, Minnesota og Missouri í dag vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum í haust.

Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri, þykir nokkuð öruggur um sigur í Colorado. Rick Santorum, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður, mælist með mest fylgi í Minnesota. Hann þykir einnig eiga góða möguleika í Miossouri því Newt Gingrich, fyrrverandi þingforseti, er þar ekki á kjörseðlinum. Obama, forseti, hefur 9% forskot á Romney, meðal landsmanna samkvæmt könnun sem blaðið Washington Post lét gera. Helmingur landsmanna er ánægður með frammistöðu forsetans samkvæmt könnuninni. Ánægjan með forsetann hefur ekki mælst svo mikil frá því eftir að bandarískir hermenn felldu Osama bin-Laden, leiðtoga al-Kaída í fyrra.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku