Flytja inn kolaofn fyrir Stiller

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

150 kíló Kalamazoo-kolaofn frá smábænum Little Compton í Bandaríkjunum verður fluttur sérstaklega til landsins vegna kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty sem Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í. Ofninn á að koma til Íslands í vikunni.

Kolaofninn er 150 kíló og einn og hálfur metri á hæð. Fyrirtækið Stove Hospital sér um að senda ofninn til Íslands en það sérhæfir sig í að gera upp gamla kolaofna og selja þá. Áhugasamir gætu keypt sér einn slíkan fyrir rúmlega 350 þúsund krónur.

Emery Pineo, eigandi fyrirtækisins,segir í samtali við fréttavef EastBay að hann viti ekki nákvæmlega hvaða hlutverki ofninn eigi að gegna, fyrirtæki hans hafi fengið fyrirspurn frá framleiðanda í Brooklyn sem hafi beðið um kolaofn og að hann ætti að líta út fyrir að vera fjörgamall. „Hann á örugglega bara að standa í einhverju horni og láta fólk fá það á tilfinninguna að hann hafi alltaf verið þar,“ segir Pineo.

Pineo segir í viðtalinu að hann viti ekki í hvaða mynd ofninn eigi að leika hér á landi, annað hvort sé það íslenska útgáfan af Cheers, Staupasteini, eða The Secret Life of Walter Mitty.  Miðað við að fyrirspurnin hafi komið frá framleiðanda í Brooklyn verður að telja líklegast að um kvikmynd Ben Stiller sé að ræða.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku