Færri telja börn sín lögð í einelti



  • Prenta
  • Senda frétt

Einelti meðal barna í grunnskólum Reykjavíkur mælist nú minna en oft áður. Niðurstöður úr viðhorfskönnun sem gerð var meðal foreldra í febrúar sýna að um 90 % foreldra telja að börnum þeirra líði alltaf eða oftast vel í skólanum.

Færri segja að barn þeirra hafi orðið fyrir einelti í skólanum en í síðustu könnun sem gerð var árið 2010. Um 70% foreldra sem sögðu barn sitt hafa lent í einelti í skólanum töldu skólann hafa unnið vel með málið og um 80 % foreldra töldu markvisst unnið eftir eineltisáætlun grunnskólans.

Í janúarmælingu Skólapúlsins mældist einelti meðal nemenda í 6. til 10. bekk heldur minna en í janúar 2011 eða að jafnaði rétt um 3%. Þetta er nær sama hlutfall og að meðaltali í skólum utan Reykjavíkur. Áfram mælist einelti minna í fjölmennari skólum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku