ESB stendur við mengunarskattinn

Kínversk þota kemur til lendingar. Mynd: Nordic Photos/AFP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur við ný lög um mengunarskatt á útblástur flugvéla. Kínversk stjórnvöld bönnuðu í dag kínverskum flugfélögum að greiða mengunarskattinn.

Ný lög um skatt á koltvísýring frá flugvélum tóku gildi í aðildarrríkjum Evrópusambandsins um áramótin. Hann nær til allra flugvéla sem fljúga um lofthelgi aðildarríkja Evrópusambandsins. Flugfélög sem neita að að greiða kunna að verða sektuð eða flugvélum þeirra bannað að lenda í aðildarríkjunum.

Talsmaður aðgerða gegn loftslagsbreytingum hjá Evrópusabandinu segir að gjald sé nú einungis tekið af 15 prósentum þess koltvísýrings sem flugvélarnar losa. Mun dýrara verði fyrir flugfélögin að borga sektir. Þær  nemi allt að100 evrum fyrir hvert tonn af koltvísýrings sem flugvélarnar losa.

Kínverjar, Rússar, Indverjar og Bandaríkjamenn hafa mótmælt skattinum  og segja að hann sé brot á alþjóðalögum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku