„Íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru á allra vörum,“ segir Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó Paradís, í sérlegum áramótaþætti Lestarklefans þar sem kvikmyndaárið var gert upp. „Ég hitti bíóstjóra í Belgíu sem sagði að hún hefði forselt sjö þúsund miða, bara í bíóinu sínu, á Andið eðlilega,“ segir hún.
„Ég hefði aldrei trúað því fyrir nokkrum árum að maður gæti gengið um og hitt fólk á kvikmyndahátíðum sem maður spyr: Hvernig kvikmyndir ertu að horfa á? Og það svarar: Ég er að horfa á íslenskar kvikmyndir,“ segir Hrönn sem er mjög ánægð með kvikmyndaárið.
„Það var ótrúlegt að upplifa það í vetur að Andið eðlilega var í keppni á Sundance. Undir trénu var í keppni haustið áður og var ennþá að svínganga í öllum arthouse-bíóum,“ segir hún. „Ég hitti bíóstjóra í Belgíu sem sagði að hún hefði forselt sjö þúsund miða, bara í bíóinu sínu, á Andið eðlilega.“
Hún nefnir til sögunnar ævintýralega velgengni kvikmyndarinnar Kona fer í stríð. „Hún er frumsýnd á Critics week og það er lengsta standandi lófaklapp sem ég hef upplifað.“ Hún segir jafnframt að íslenskir kvikmyndagerðarmenn séu á allra vörum. „Við eigum allt þetta frábæra fólk, við eigum marga kvikmyndagerðarmenn og -konur sem eru að gera áhugaverðar kvikmyndir sem eru að sigra heiminn og fólk er að tala um. Þetta er alveg ótrúlegt, enn annað íslenskt ævintýri.“
Kvikmyndaárið var gert upp í sérlegum áramótaþætti Lestarklefans. Gestir þáttarins voru Hrönn Sveinsdóttir, Kristín Loftsdóttir og Þorgeir Tryggvason. Stjórnandi þáttarins var Guðrún Sóley Gestsdóttir. Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur hér.