Emil Boc segir af sér

Emil Boc. Mynd: Nordic Photos/AFP
Stjórnmálaóvissa ríkir nú í Rúmeníu eftir að Emil Boc baðst lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Forsætisráðherrann kveðst með ákvörðun sinni vilja draga úr ólgu í landinu vegna aðhaldsaðgerða stjórnarinnar.
Boc tilkynnti formlega um afsögn sína í stuttu ávarpi að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Hann kvaðst fara sáttur frá borði enda hefði stjórn hans haft hugrekki til að taka óvinsælar ákvarðanir á erfiðum tímum sem nú væru farnar að bera ávöxt. Hins vegar hefði ólgan í landinu magnast svo mikið að rétt væri að aðrir tækju við stjórnartaumunum.
Ríkisstjórn Emils Boc tók við völdum í Rúmeníu 2008. Skömmu síðar féll landsframleiðslan um 7% vegna fjármálakreppunnar og þurfti ríkið því að fá 26 milljarða evra lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Á meðal aðhaldsaðgerða sem gripið var til í kjölfarið voru 25% launalækkun opinberra starfsmanna, frysting lífeyrisgreiðslna og hækkun virðisaukaskatts úr 19 í 24 prósent.
Frá áramótum hefur komið til ítrekaðra mótmæla í landinu enda er almenningur orðinn langþreyttur á ástandinu og gildir einu þótt tveggja prósenta hagvöxtur hafi mælst í fyrra. Þingkosningar verða að óbreyttu í Rúmeníu í nóvember og er búist við að Trajan Basescu forseti skipi starfsstjórn sérfræðinga til að stýra landinu þangað til.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Utanríkisráðherra Rúmeníu rekinn





