Elvisbiblía seld fyrir morð fjár

Flokkar: Erlent, Menning


  • Prenta
  • Senda frétt

Biblía úr fórum Elvis Presley var slegin hæstbjóðanda á 59 þúsund pund, jafnvirði ellefu og hálfrar milljónar króna, á miklu Elvisgripauppboði í Manchester í gær. Hundrað gripir voru boðnir upp, flestir seldust.

Vester frændi og Clettes frænka færðu Elvis biblíuna að gjöf í heimsókn til Graceland 1957. Í henni eru margar athugasemdir sem rokkkóngurinn skrifaði eigin hendi. Mikil eftirvænting ríkti þegar biblían var boðin upp, 300 manns voru í salnum og spenna mikil.

Hins vegar voru menn ekki jafn spenntir fyrir óhreinum nærbuxum Presleys sem einnig stóðu unnendum hans til boða. Einn bauð þó 5 þúsund pund í þær, en það nægði hvergi, því lágmarksboð var 7 þúsund pund.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku