Bjarni Bendiktsson fjármálaráðherra segir að hvorki hann né þingflokkur Sjálfstæðisflokksins myndu sætta sig við að ráðherra úr þeirra liði sæti hjá í atkvæðagreiðslu um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Hann segir ekki hægt að hafa hlutina eins og á leikskóla þar sem barið er í borð þar til hver fær sitt.
Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félagsmálaráðherra, sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Í viðtali við fréttastofu segir Bjarni að ákvörðun ráðherra komi sér ekki á óvart eftir að hafa hlýtt á gagnrýni hennar á málið áður. Hins vegar sæti það tíðindum að ráðherra styðji ekki lykilmál og eðlilegt að menn verði hvumsa við. Hann segir hins vegar að Eygló sé ekki ráðherra á hans ábyrgð.
Menn þurfi að líta eigin barm og spyrja sig hvort menn geti setið áfram ef menn styðji ekki meginmál. Starfsfriður í ríkisstjórninni sé háður því að menn komist að niðurstöðu. „Í tilfelli ríkisfjármála áætluninnar er það þannig að ef menn skoða hana og eru málefnalegir, að við höfum verið að forgangsraða því sem er til skiptanna, meðal annars í þessa málaflokka sem þessi ráðherra er fyrir.“ segir Bjarni.
Bjarni veit ekki hvort það þjóni tilgangi að ræða þetta á ríkisstjórnarfundi í dag. „Þetta er ekki þannig að ég velji í ríkisstjórn fyrir Framsóknarflokkinn og ég ætla ekkert að skipta mér að því hvernig þeir raða sínum málum, þeir verða að gera það sjálfir. Það er langbest að fylgja einfaldri línu í þessu, ríkisstjórnin sest yfir það eftir að ráðherranefnd hefur skoðað þau mál, sem sagt hvaða svigrúm er til staðar og hvernig við ætlum að skipta því. Svo er fengin niðurstaða. Ef menn segjast ætla að setjast hjá við það þá eru þeir bara ekki með í liðinu.“
Þannig að húsnæðismálaráðherra er að þínu mati ekki með í liðinu?
„Nei, hún getur ekki gert miklar kröfur um að fá framgang annarra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráðherrar eru að fá. Þetta getur ekki verið bara eins og í leikskóla að menn berji í borðið þangað til hver fái það sem hann vill. Þá verður bara ríkisstjórnin óstarfhæf og allt verður í viðstöðulausri upplausn. En sem betur fer erum við þó ekki komin á þann stað.“