Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið að eldstöðinni í Holuhrauni með vísindamenn til að skoða aðstæður. Dregið hefur verulega úr hraunflæði og á myndbandi sem Gísli Gíslason, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, tók í dag er enga glóð að sjá á yfirburði gígsins.
Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarna, segir að þó ekki sjáist glóð á yfirborði gígsins þýði það ekki að eldgosinu í Holuhrauni sé lokið. Enn mælist virkni og gervihnattamyndir sem teknar voru í nótt gefi til kynna að þá hafi eldgosið enn verið í gangi.
Mjög illa hefur sést til gosstöðvanna síðustu daga vegna veðurs. Skjálftavirkni í Bárðarbungu er minni en áður og ekki hefur mælst stærri skjálfti en 3 í sex daga. Um 50 skjálftar hafa mælst í jöklinum frá því á þriðjudag og um 60 í kvikuganginum. Þá hafa mælst skjálftar við Öskju og Herðubreið og í Tungnafellsjökli.
Í tilkynningu frá vísindamannaráði Almannavarna kemur fram að það sé mjög háð veðri hve margir skjálftar mælast á svæðinu. Bárðarbunga sígur nú um 5 sentimetra á dag en þegar sigið var mest var það um 50 sentimetrar á dag eða tíu sinnum meira en nú. GPS mælar sýna enn hægar færslur í átt að Bárðarbungu sem þykir benda til þess að enn flæði kvika undan Bárðarbungu.