Efnahagsráðherra: Verðbólgan of mikil

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir fúlt að sjá verðbólguna svo háa, en hún mælist nú sex og hálft prósent og hefur ekki verið hærri í tuttugu mánuði. Hann segir þó góðar horfur á því að hún fari aftur lækkandi.
Ársverðbólgan mælist nú sex og hálft prósent samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar. Hún hefur ekki mælst svo mikil síðan í maí 2010, þegar hún var sjö og hálft prósent.
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir það alltaf áhyggjuefni þegar verðbólga rísi svo hátt en að þetta sé í samræmi við það sem búist hafi verið við.
„Auðvitað er aldrei gaman að sjá verðbólguna fara upp en það var við þessu búist og á þessu eru auðvitað skýringar,“ sagði Steingrímur í viðtali við fréttastofu RÚV.
Gjaldskrárhækkanir ríkis og sveitarfélaga um áramót vegi þar þung, veiking gengisins og ýmsar hækkanir svo sem á olíu og fasteignum geri það einnig.
„Í þetta tólf mánaða meðaltal koma líka eða vega líka þungir mánuðir frá vormánuðum síðasta árs. Þannig að þetta mun hjaðna á næstunni. Þegar að meðaltalið færist yfir á þá mánuði þar sem verðbólgan var mun lægri. Um leið og þetta er auðvitað alltaf súrt í broti að sjá verðbólguna taka skref í þess átt þá eru góðar horfur á því að hún muni síðan fara að hjaðna aftur,“ sagði Steingrímur.
Þá séu góðar líkur á að gengið fari að styrkjast aftur sem vinna á móti frekari verðbólguhækkunum. „Við erum svona á daufasta tíma ársins hvað það snertir. Þegar minnstar gjaldeyristekjur eru að koma úr ferðaþjónustunni og áður en mikill útflutningur af vertíðinni, vetrarvertíðinni fer í gang. Þannig að með styrkingu gengis og vegna þess að þá koma hagstæðari mánuðir inn í meðaltalið á næstunni þa mun þetta vonandi ganga tiltölulega hratt til baka,“ sagði Steingrímur að lokum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







