Efla þarf eftirlit með lífeyrissjóðum

Nefndin sem gerði úttekt á starfsemi lífeyrissjóðanna vill að eftirlit með lífeyrissjóðum verði eflt. Hún leggur til að allir lífeyrissjóðir móti sér þá stefnu að einn eða fleiri sjóðfélagar eigi fulltrúa í stjórn. Eins og staðan sé nú sé lýðræðið of langsótt.

Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi í dag en hún er afrakstur vinnu nefndar sem skipuð var sumarið 2010 til að gera úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og áhættu við fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda hrunsins.

Að mati nefndarinnar er skilningur á markalínu milli stjórnar og framkvæmdastjóra og starfsmanna óskýr. Fáir lífeyrissjóðir hafi sett sér viðmiðanir í þessu efni. Nefndin telur mikilvægt að skýrar línur séu í þessu efni.

Þá telur nefndin að allir sjóðir eigi að skipa regluvörð og stjórnir og starfsmenn eigi að upplýsa um alla verðbréfaeign sína og viðskipti með verðbréf. Í sumum lífeyrissjóðum var stjórn undanþegin því að gefa upp þessar upplýngar. Starfsemi lífeyrissjóða byggir á trausti og því þarf að tryggja að stjórnir gefi upp viðskipti sín með verðbréf. Þeir sem ekki geti uppfyllt þetta eigi ekki erindi í stjórn.

"Þeir sem sitja í stjórnum lífeyrissjóða eða eru starfsmenn þeir verða að gefa upp hlutabréfaeign sína. Það er eðlilegt skilyrði fyrir trausti á sjóðunum því annað skipulag býður einfaldlega upp á of miklar freistingar," segir Hrafn Bragason, hæstaréttardómari og formaður nefndarinnar.

Þá er það mat nefndarinnar að allir lífeyrissjóðir verði ekki aðeins að setja sér siðareglur og samskiptareglur heldur halda þeim við reglulega. Nefndin taldi ekki ástæðu til að safna saman upplýsngum um boðsferðir og gjafir til lífeyrissjóðanna á árunum fyrir hrun. 

Nefndin gagnrýnir að stórar ákvarðanir hafi ekki alltaf farið fyrir stjórnir lífeyrissjóðanna. Dæmi um mislukkaða fjárfestingu sé skuldabréfaútboð Glitnis í mars 2008, upp á fimmtán milljarða. Tveir af þremur stærstu lífeyrissjóðum landsins fjárfestu í útboðinu en málið fór aðeins fyrir stjórn fyrirfram í öðrum þeirra. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku