Mynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Benedikt og félagar héldu dagbók dagana í kringum frumsýninguna og leyfa Íslendingum að skyggnast í hana.
Myndin segir frá kórstjóra á fimmtugsaldri sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands, þar til munaðarlaus stúlka stígur inn í líf hennar og hún þarf að taka ákvörðun um hvort hún bjargi einu barni eða heiminum öllum.
Kona fer í stríð er önnur kvikmynd Benedikts Erlingssonar í fullri lengd á eftir Hross í oss sem kom út árið 2013. Hún vann til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna, þeirra á meðal Norrænu kvikmyndaverðlaunanna árið 2014 og verðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastián á Spáni, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tókýó og Tallinn Black Nights í Eistlandi.