Christel Boeljon vann í Ástralíu
Fyrst birt: 06.02.2012 21:18, Síðast uppfært: 06.02.2012 21:18

Christel Boeljon
Christel Boeljon frá Hollandi bar sigur úr býtum á ástralska meistaramóti kvenna í golfi sem lauk í gær á Royal Pines vellinum en mótið tilheyrir Evrópumótaröð kvenna.
Boeljon lék á samtals 21 höggi undir pari og varð einu höggi á undan Diana Luna frá Ítalíu og Ryu So-yeon og Kim Ha-neul frá Suður-Kóreu sem allar urðu jafnar í öðru sæti á samtals 20 höggum undir pari. Þetta var annar sigur Boeljon á Evrópumótaröðinni á tímabilinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







