Björk aflýsir vegna veikinda

Tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur, sem fara áttu fram í New York í kvöld, hefur verið aflýst vegna veikinda. Þetta kemur fram á vef blaðsins The New York Times en haft er eftir fjölmiðlafulltrúa Bjarkar að enn sem komið er standi til að söngkonan haldi þrenna tónleika í borginni í næstu viku.

Tónleikarnir í kvöld  áttu að fara fram í New York Hall of Science í Queens hverfinu.

Björk hélt tónleika í borginni síðasta mánudag og föstudag og eru einnig áætlaðir tónleikar á sunnudag, næsta miðvikudag og fimmtudag. Á heimasíðu New York Hall of Science segir einungis að tónleikarnir í kvöld falli niður vegna veikinda og að miðaeigendur geti fengið miða sína endurgreidda.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku