BHM og BSRB ósátt við Ögmund

Ögmundur Jónassonar, innanríkisráðherra.

Bandalag háskólamanna gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, í ræðustól Alþingis í gær.

Í yfirlýsingu frá bandalaginu segir að ráðherra hafi látið að því liggja að starfsmenn stjórnarráðsins væru háðir eldvatni, ferðalögum til Brussel, hóteldvöl og dagpeningum.

Slík ummæli ráðherra, um starfsfólk sitt og stjórnarráðsins alls, séu forkastanleg og með ólíkindum að fyrrverandi leiðtogi opinberra starfsmanna til áratuga láti þau frá sér fara. BHM krefst þess að Ögmundur biðji starfsfólk sitt afsökunar á ómaklegum ásökunum. Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, segir málflutning Ögmundar ómaklegan og ekki sæmandi manni í hans stöðu.

Í frétt á vef BSRB segir Helga:
„Núverandi ríkisstjórn sóttist eftir aðild að ESB en ekki opinberir starfsmenn sem eru væntanlega aðeins að vinna vinnuna sína eins vel og þeir geta. Sú vinna felst m.a. í því að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar og undir það falla vissulega fundir erlendis vegna umsóknar um aðild að ESB. Málflutningur Ögmundar er því algerlega óásættanlegur, sérstaklega komandi frá manni í hans stöðu.“

Ummæli Ögmundar voru eftirfarandi:
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að stofnanakerfið ánetjist þessari umræðu, því að nú er talað um eldvatnið. Hvernig stendur á því að alltaf þegar bornir eru upp samningar innan Evrópusambandsins, það er mjög algeng regla, er stofnanaveldið, hvort sem það er verkalýðshreyfing, atvinnurekendasamtök eða stjórnsýslan, hlynnt en almenningur á móti? Það er vegna þess að það er búið að fara með flugvélafarma viku eftir viku, mánuð eftir mánuð (Forseti hringir.) út til Brussel þar sem menn halda við  á kostnað ríkisins. Þetta fólk ánetjast Evrópusambandinu og vill ólmt halda áfram og fá að fara í fleiri ferðir, fleiri hótelferðir, meiri dagpeninga. Það er þetta sem er að gerast, það er þess vegna sem stofnanaveldið ánetjast Evrópusambandinu.

Verið var að ræða IPA Evrópustyrki á þinginu þegar þingmaður Framsóknar vildi vita skoðun ráðherra á þeim.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku