„Það er alveg ljóst að þörf er á nýrri hugsun og nýrri tækni til að við náum þeim metnaðarfullu markmiðum sem hafa verið sett hér og annars staðar til að draga úr losun. Það er líka áskorun að gera þetta á þann hátt að það bitni ekki um of á lífsgæðum okkar,“ sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, á Morgunvaktinni á Rás 1. „Atvinnulífið vill gjarnan samstarf við stjórnvöld í þessum málum, vegna þess að árangur mun ekki nást nema við tökum öll höndum saman."

Losun gróðurhúsalofttegunda heldur áfram að aukast á Íslandi. Mest losar álframleiðslan, samgöngur eru í öðru sæti. Sigurður Hannesson segir að stóriðjan á Íslandi standi sig vel í aðgerðum til að draga úr losun. Frá 1990 hafi dregið um 75% úr losun á hvert framleitt tonn af áli og unnið sé að þróunarverkefnum sem ætlað er að draga enn frekar úr losuninni.  „Atvinnulífið vill gera meira og betur í þessum málum,“ sagði Sigurður Hannesson á Morgunvaktinni. Þar lýsti hann ýmsum verkefnum sem unnið er að, t.d. í samvinnu við Festu, og lúta að því að auka vitund fyrirtækja í loftslagsmálum og aðstoða þau við að þróa umhverfisvænar lausnir.