Allir verði líffæragjafar

Lungu. Mynd: Shutterstock.
Allir ættu sjálfkrafa að verða líffæragjafar segir í tillögu sem lögð var fram á Alþingi í dag. Líffæraþegi sem fékk nýtt lunga í fyrra segist hafa grátið þegar hann andaði í fyrsta sinn með nýja lunganu.
Sautján þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að sett verði í lög svokallað "ætlað samþykki" við líffæragjafir þannig að látinn einstaklingur verði sjálfkrafa líffæragjafi, nema annars hafi verið óskað. Kjötsúpa, harðfiskur og ferð á mótorhjólinu var efst á óskalista karlmanns sem fékk nýtt lunga í fyrra.
Jóhann Bragason var fárveikur árum saman eftir að vírussýkingu sem hann fékk fyrir 14 árum. Hann fór beint upp í flugvél þegar kallið kom frá Salhgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. „Ég fer út á föstudaginn langa, eins og ég segi alltaf, fæ lungað á laugardegi og reis upp á sunnudegi. Þetta er bara eins og upprisan sjálf.“
Aðgerðin tók tíu klukkustundir en Jóhann er þrettándi íslenski lungnaþeginn. Hann sagðist hafa eiginlega farið að gráta þegar hann vaknaði með nýja lungað í fyrsta sinn. „„Allt í einu ertu bara eins og með þrýstiloftskút og getur andað eins og hver annar. Þetta er eins og lítið barn myndi muna eftir því þegar það andar fyrst,“ segir Jóhann
Hér á landi er gengið út frá ætlaðri neitun í líffæragjöfum nema að fólk beri sig sérstaklega eftir því, segir Siv Friðleifsdóttir fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Aðstandendur hafni því oft líffæragjöf enda viti þeir ekki hug hins látna.
Siv segir að með ætluðu samþykki þá sé hægt að auðvelda aðstandendum ákvarðanatöku. Mikil bið sé eftir líffærum í dag, þannig að það sé alveg eðlilegt að Íslendingar gefi meira til þess að bjarga mannslífum, bæði hér á Íslandi en líka erlendis.
Jóhann segir að ætlað samþykki eins og nú sé lagt til myndi breyta miklu því langflestir hljóti að vilja vera líffæragjafar. Áður en hann veiktist var hann mjög virkur og er nú í fullri vinnu við að ná bata því það tekur tíma fyrir líkamann að venjast nýju líffæri. Hann stefnir á að hlaupa 20 kílómetra á heimsleikum líffæraþega í Suður-Afríku 2013.
„Efst á listanum úti þegar maður vaknaði, eða eftir svona viku, það var sko að fá kjötsúpu, harðfisk, ískalda litla kók og mótorhjólið. Það er bara svoleiðis. Þannig að það verður hjólað grimmt í sumar.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







