Á annan veg tilnefnd í Gautaborg

Íslenska kvikmyndin Á annan veg er ein af átta myndum sem tilnefndar eru til Drekans, mikilvægustu kvikmyndaverðlauna norðurlanda. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Riff situr í aðaldómnefnd á Gautarborgarhátíðinni, sem hefst í dag.

Gautarborgarhátíðin er stærsta kvikmyndahátíð Norðurlanda. Hátt í fimmhundruð kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni sem er alþjóðleg. Átta norrænar myndir keppa um Drekann. Ein íslensk kvikmynd er tilnefnd, kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar Á annan veg. Myndin hefur verið sýnd á fjölmörgum hátíðum frá því að hún var frumsýnd í haust og unnið til nokkurra verðlauna. 

Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið Drekann; báðar eftir Dag Kára Pétursson, Nói albínói og Voksne mennesker. Drekinn verður afhentur 4. febrúar. Það er til mikils að vinna, verðlaunaféð nemur rúmum átján milljónum króna. Í aðaldómnefnd situr Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi íslensku kvikmyndahátíðarinnar Riff en það þykir mikill heiður.

„Mér finnst þetta náttúrlega bara mjög spennandi að fara til Gautaborgar af því að þetta er stærsta kvikmyndahátíðin sem er rekin á Norðurlöndunum. Ég er auðvitað bara mjög spennt að fara í bíó og sjá þessar myndir og ekki síst þær sem að keppa um þessi Drekaverðlaun,“ segir Hrönn. 


Hún kvíðir ekkert  þessu mikilvæga hlutverki. „Nei ég er ekkert stressuð. Ég hef verið í dómnenfd áður og veit vel út á hvað þetta gengur. Ég hlakka bara til, fyrst og fremst.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Menning

Tilkynna um bilaða upptöku