Reykjavíkurborg og Íslandsbanki skrifuðu í gær undir samning um uppbyggingu við Kirkjusand á atvinnuhúsnæði og 300 íbúðum. Til stendur að byggja, alls hátt í 80 þúsund fermetra.

Samningurinn var undirritaður á gömlu strætólóðinni en uppbyggingin nær yfir þá lóð og lóð Íslandsbanka við Kirkjusand. 

Gert er ráð fyrir allt að 300 nýjum íbúðum í fjölbýli á 31 þúsund fermetrum og verður hluti þeirra leiguíbúðir. Atvinnuhúsnæði verður um 48 þúsund fermetrar. Heildarstærð húsnæðis ofanjarðar verður því um 79 þúsund fermetrar, en að auki verða bílastæði neðanjarðar.

Í meðfylgjandi frétt má sjá myndir af svæðinu og nánari upplýsingar.