
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Pawel Bartoszek og Dijá Mist Einarsdóttur alþingismenn um hingaðkomu Markos Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Rætt við Andreas Schleicher, framkvæmdastjóra hjá OECD um PIsa próf og frammistöðu Íslendinga. Fjallað um símabann í Garðaskóla í Garðabæ, rætt við skólastjóra og nemendur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins?
Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans á Egilsstöðum í undanúrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Viðar Pálsson, Arnór Hauksson og Sverrir Guðmundsson. Lið Menntaskólans á Egilsstöðum skipa Stefán Bogi Sveinsson, Þórður Mar Þorsteinsson og Hrafnkell Freyr Lárusson.
- Endursýnt
Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar að afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til að freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill og Guðjón halda áfram göngu sinni um hverfin umhverfis Amalienborgarhöll og fara á slóðir íslenskra listamanna í Konunglega leikhúsinu og Listaakademíunni. Þeir líta inn á einn af uppáhaldsveitingastöðum Jóns Sigurðssonar og kynnast nokkrum af Íslandskaupmönnunum sem verða á vegi þeirra í þáttunum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Dagmar Agnarsdóttir er engin venjuleg amma á áttræðisaldri. Hún er margfaldur heimsmethafi í kraftlyftingum í flokki 70 ára og eldri. Ung að árum dreymdi hana um að verða listmálari. Foreldrar hennar höfðu aðrar væntingar og vonir þannig að hún gerðist hárgreiðslumeistari. Fjölmörgum árum seinna, þegar hún fluttist til Asíu, sneri hún sér að listinni. Síðan þá hefur listin verið stór hluti af lífi Dagmarar sem hefur haldið fjölmargar sýningar og myndskreytt barnabækur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Hver skrifar sögu okkar? Það fer eftir ýmsu, svo sem þjóðerni, kyni eða uppruna, og sama atburði má lýsa á marga mismunandi vegu. Fornleifauppgröftur, nýjar rannsóknir eða annar tíðarandi getur líka valdið því að sagnfræðin verði endurskoðuð. Emma Molin og Özz Nûjen hjálpa okkur að sjá fleiri en eitt sjónarhorn á sögunni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Ástsælu Múmínálfar Tove Jansson snúa aftur og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Óska eftir að segja upp kjarasamningum 2. Átta ára skáksnillingur. Ljúkum þættinum á myndum frá forsýningu myndarinnar Pési prakkari🎃
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarmenn koma í stutt viðtöl og flytja tónlist. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Fram koma Superseroius, Soffía, Inspector Spacetime, Gosi og Flott.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Fjallað er um Sigurð Gústafsson, hönnuð og arkitekt, sem hefur víðtæk áhrif á íslenskt manngert umhverfi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Finnlandssænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð. Hvaða áhrif hafa fegurðarstaðlar á sjálfsmynd okkar og hvernig finnst konum að eldast? Rýnt er í mæðgnasambönd og hvað erfist á milli kynslóða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Eldfimt ástand ríkir á milli danska vélhjólagengisins og sértrúarsöfnuðarins að Ásum. Andri heldur til Reykjavíkur að leita manns sem gæti búið yfri mikilvægum upplýsingum í tengslum við morðið.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Breskir glæpaþættir frá 2022 um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie. Í kjölfar stöðuhækkunar innan skosku lögreglunnar hefur hún rannsókn á gömlu, óleystu morðmáli og kemur auga á ýmsa vankanta í upphaflegu rannsókninni. Aðalhlutverk: Lauren Lyle, Chris Jenks og Emer Kenny. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Bein útsending frá blaðamannafundi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, eftir fund ráðherranna.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending