Fjallað um mál sem eru ofarlega á baugi hverju sinni og góðir gestir teknir tali.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir.
Það bárust slæmar fréttir af atvinnumálum Akurnesinga í byrjun júlí þegar tilkynnt var um gjaldþrot Skagans 3X. Gjaldþrotið er ekki eina áfallið sem dunið hefur yfir atvinnulíf bæjarins. En á sama tíma berjast einnig jákvæðar fréttir frá Akranesi, Haraldur Benediktsson bæjarstjóri sagði frá málefnum bæjarins.
18. júlí er dagur íslenska fjárhundsins. Sóley Ragna Ragnarsdóttir er stoltur eigandi íslensks fjárhunds og sagði frá tegundinni, frá sögu þessa dags og dagskránni hjá hundaeigendum og hvuttum þeirra í dag.
Eldri kynslóðir hafa miklar áhyggjur af velferð ungs fólks. Jafnvel er sagt að snjallsímar séu eyðileggja líf barna og ungmenna. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, frumkvöðull og stofandi tveggja nýsköpunarfyrirtækja, var gestur Morgungluggans og ræddi málefni ungs fólks. Hún segir nauðsynlegt að hugsa hlutina upp á nýtt og að börn og ungmenni fái þá þjónustu sem þurfa á að halda.
Ingunni Ósk Árnadóttur, yfirlandvörður í Friðlandi að Fjallabaki, var á línunni í síðasta hluta þáttar. Hún sagði frá svæðinu og verkefnum landvarða þar.
Tónlist:
Enken yelelebesh - Girma Beyene
One Last Dance - Baby Rose
Ég tek hundinn - Hljómsveit Ingimars Eydal
Fjöllin hafa vakað - Egó
Rólegur kúreki - Bríet
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Söngkonan Una Torfadóttir hefur alltaf verið óhrædd við að hafa sínar eigin skoðanir. Hún segir það vera gjöf úr æsku þar sem hlustað var á hana. Hún kemur úr tónelskri fjölskyldu sem syngur gjarnan saman þegar þau hittast og viðurkennir hún að líklega finnist einhverjum það undarlegt. 19 ára gömul greindist hún með krabbamein sem hún segir hafa kennt sér dýrmæta lexíu og breytt sýn sinni á lífið.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Hinrik Bjarnason varð níræður fyrir rúmri viku, hann starfaði lengi hér á RÚV, fyrst við þáttagerð, var meðal annars fyrsti umsjónarmaður Stundarinnar okkar, var á tímabili dagskrárstjóri hér í sjónvarpinu. Hann var einnig meðal annars í stjórn Bandalags íslenskra listamanna og í stjórn Kvikmyndasjóðs. Hann hefur einnig samið talsvert af söngtextum og hefur verið handritshöfundur að leiknu efni fyrir sjónvarp. Við fengum Hinrik í létt afmælisspjall í tilefni tímamótanna og litum með honum yfir farinn veg.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og að þessu sinni sagði Magnús frá fótboltaáhuga sínum og aðdáun á ítalska landsliðinu sem gerði að vísu enga frægðarför til Berlínar að þessu sinni. Hann sagði líka frá því sem Þjóðverjar kalla „frei korpenkultur“ sem felst aðallega í því að vera nakinn út í náttúrunni. Í lokin sagði hann frá því að það er langt frá því að vera auðvelt að læra á nýja raforkuknúinn bíl.
Ása Baldursdóttir, okkar helsti sérfræðingur í áhugaverðum hlutum að hlusta, eða horfa á, var svo hjá okkur í dag. Í þætti dagsins fjallaði Ása um hlaðvörpin Játningar í skápnum (Closet Confessions), Ráðgátan (Mystery Show) og heimildaþáttunum Ren Fair sem fjalla um furðulega valdabaráttu milli stjórnenda svokallaðra endurreisnarhátíða í Bandaríkjunum.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Hani, krummi, hundur, svín / Lónlí blú bojs (Jón Leifs)
Uppáhöld / Kristín Erna Blöndal (Rodgers & Hammerstein, texti Hinrik Bjarnason)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Matvælaráðherra kveðst hafa áhyggjur af niðurstöðum skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um sjókvíaeldi. Hún hefur þó ekki gert upp við sig hvort hún leggur aftur fram frumvarp um lagareldi.
Ursula von der Leyen hefur verið endurkjörin forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til næstu fimm ára. 401 þingmaður Evrópuþinginu studdi hana í leynilegri atkvæðagreiðslu í morgun. Von der Leyen hefur gegnt þessari stöðu frá 2019.
Áhrifakona í Demókrataflokknum hefur tjáð Joe Biden Bandaríkjaforseta, að hún telji óhugsandi að hann sigri Trump í komandi kosningum. Hlé hefur verið gert á kosningabaráttu Bidens eftir að hann greindist með Covid í gær.
Sparneytnir tengiltvinnbílar og rafmagnsbílar greiða jafnhátt verð fyrir notkun vegakerfisins og bensínbílar í fyrirhuguðu kerfi þar sem kílómetragjald tekur við af bensíngjöldum. Verkefnastjóri segir þó áfram gert ráð fyrir fjárhagslegum hvötum til að nota umhverfisvæna orkugjafa.
Covid-smitum hefur fjölgað síðasta mánuðinn. Sóttvarnarlæknir segir að þrátt fyrir aukningu séu ekki merki um að veikindi séu alvarlegri.
Atli Örvarsson tónskáld er í sjöunda himni með Emmy-tilnefningu fyrir þættina Silo. Hann er á Akureyri að semja tónlist fyrir næstu seríu.
Hundavinir fagna degi íslenska fjárhundsins. Þórarinn Eldjárn hitti bjargvætt hundakynsins, breska auðmanninn Mark Watson í Glaumbæ í Skagafirði 1958. Þórarinn segir frá fundi þeirra í fréttatímanum.
Þættir þar sem sagt er frá ýmsum stöðum um allt land. Stöðum sem eiga sér sérstakt pláss í hjörtum viðmælenda.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Halla Ólafsdóttir segir frá Hornströndum, náttúrparadís sem er nánast í bakgarðinum frá heimili hennar á Ísafirði.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Í þáttunum er fjallað um verkalýðsbaráttusöngva frá frönsku byltingunni 1789 til nútímans.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir
Hér verður fjallað um baráttusöngva á síðustu þremur áratugum 19. aldar. Þar á meðal eru Varsjársöngurinn pólski, franski söngurinn „Fille d´ouvrier“ (Verkamannsdóttir) og enski söngurinn „The red flag“ (Rauði fáninn), en allir þessir söngvar voru samdir í kringum 1880.
![Tengivagninn](/spilari/DarkGray_image.png)
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Tómas Ævar Ólafsson færir okkur sendingu frá Seyðisfirði, þaðan sem hann er staddur. Listahátíðin LungA er þar í fullum gangi þessa dagana með öllum sínum viðburðum og vinnusmiðjum og hápunkturinn, sjálf tónleikahátíðin, verður svo um helgina. En þetta verður í síðasta sinn sem LungA fer fram.
Lóa Björk Björnsdóttir hefur líka verið á ferð um Austurland, og í þætti dagsins heyrum við frá heimsókn hennar til mæðgnanna Önnu og Írisar á Framnesi við Berufjörð.
Ásgeir H. Ingólfsson, menningarsmyglari, heldur áfram að rýna í það markverðasta sem varð á vegi hans á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi í sumar.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
Kvöldfréttir útvarps
Sprenging varð í Leifsstöð í dag; og starfsmaður hlaut minni háttar áverka. Sprengjusveit Ríkislögreglustjóra er að störfum.
Slysasleppingar úr laxeldum ættu að kalla á leyfissviptingu, segir framkvæmdastjóri Landssamtaka veiðifélaga. Skýrsla Hafrannsóknarstofnunar um sjókvíaeldi
Forsætisráðherra Ísraels hefur stöðvað uppsetningu bráðabirgðasjúkrahúss sem varnarmálaráðherra landsins hafði samþykkt á Gaza.
Undirbúningur fyrir innsetningarathöfn forseta eftir tvær vikur er margslunginn en miðar vel. Sýnt verður frá athöfn í Alþingishúsinu á tveimur risaskjám á Austurvelli.
Það ríkti andi af Miðjarðarhafi hjá sigurvegurum í svalaskreytingarkeppni á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hærra hlutfall rafmagnsbíla og sparneytnari dísil-og bensínbíla hefur orðið til þess að tekjur stjórnvalda af olíu- og bensíngjöldum hafa dregist saman um 30% frá 2012, á sama tíma og umferð hefur aukist um 50% og álag á vegi að sama skapi. Nánast ekkert var greitt fyrir akstur á rafmagns- og tengiltvinnbílum en það breyttist um áramótin þegar tekið var upp gjald, 6 krónur á kílómetra fyrir rafmagns og vetnisbíla en 2 krónur fyrir tengiltvinnbíla. Auka á jafnræði og sanngirni með nýju kerfi um næstu áramót þar sem tekið verður kílómetragjald af öllum farartækjum í hlutfalli við þyngd þeirra, segir Ragnar Bjartmarz, verkefnastjóri Verkefnastofu um samgöngugjöld.
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Þegar vindurinn slapp út í heiminn (Inúítasaga frá Grænlandi)
Strákurinn sem fór til norðanvindsins (Noregur)
Og þess vegna eru sum tré sígræn (saga frá Chippewa ættbálkinum í N- Ameríku)
Leikraddir:
Bjarni Gunnar Jensson
Eva Halldóra Guðmundsdóttir
Fjölnir Ólafsson
Guðni Tómasson
Hafsteinn Vilhelmsson
Jóhannes Ólafsson
Pétur Grétarsson
Ragnar Eyþórsson
Sigríður Salka Fjölnisdóttir
Vala Bjarney Gunnarsdóttir
Handrit, lestur, klipping og hljóðskreyting: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
![Dánarfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Dánarfregnir.
Frá sumartónlistarhátíðum vítt og breitt um Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Skosku kammersveitarinnar á Mozarthátíðinni í Würtzburg, 26. maí sl.
Á efnisskrá eru verk eftir Felix Mendelssohn og Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikari: Alina Ibragimova fiðluleikari.
Stjórnandi: Maxim Emelyanychev.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Hinrik Bjarnason varð níræður fyrir rúmri viku, hann starfaði lengi hér á RÚV, fyrst við þáttagerð, var meðal annars fyrsti umsjónarmaður Stundarinnar okkar, var á tímabili dagskrárstjóri hér í sjónvarpinu. Hann var einnig meðal annars í stjórn Bandalags íslenskra listamanna og í stjórn Kvikmyndasjóðs. Hann hefur einnig samið talsvert af söngtextum og hefur verið handritshöfundur að leiknu efni fyrir sjónvarp. Við fengum Hinrik í létt afmælisspjall í tilefni tímamótanna og litum með honum yfir farinn veg.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og að þessu sinni sagði Magnús frá fótboltaáhuga sínum og aðdáun á ítalska landsliðinu sem gerði að vísu enga frægðarför til Berlínar að þessu sinni. Hann sagði líka frá því sem Þjóðverjar kalla „frei korpenkultur“ sem felst aðallega í því að vera nakinn út í náttúrunni. Í lokin sagði hann frá því að það er langt frá því að vera auðvelt að læra á nýja raforkuknúinn bíl.
Ása Baldursdóttir, okkar helsti sérfræðingur í áhugaverðum hlutum að hlusta, eða horfa á, var svo hjá okkur í dag. Í þætti dagsins fjallaði Ása um hlaðvörpin Játningar í skápnum (Closet Confessions), Ráðgátan (Mystery Show) og heimildaþáttunum Ren Fair sem fjalla um furðulega valdabaráttu milli stjórnenda svokallaðra endurreisnarhátíða í Bandaríkjunum.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Hani, krummi, hundur, svín / Lónlí blú bojs (Jón Leifs)
Uppáhöld / Kristín Erna Blöndal (Rodgers & Hammerstein, texti Hinrik Bjarnason)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Sagan kom fyrst út 1940 og er fyrsta verkið sem Gunnar samdi á íslensku eftir að hann fluttist heim og settist að á Skriðukalustri. Heiðaharmur gerist íslenskri fjallabyggð í lok nítjándu aldar þegar þeirri byggð er að hnigna af ýmsum ástæðum. Sögusviðið á sér fyrirmynd í heiðunum upp frá Vopnafirði þar sem voru æskuslóðir höfundar. Aðalpersónur eru Brandur á Bjargi, stórbóndi sem berst við að halda sveitinni í byggð og dóttir hans, Bergþóra sem nefnd er Bjargföst, eftirlæti fólksins í byggðinni. Hún tekur við búskap á Bjargi af honum ásamt manni sínum. Barátta þessa fólks er meginefni sögunnar.
Andrés Björnsson les. Hljóðritunin er frá árinu 1989.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
![Næturtónar](/spilari/DarkGray_image.png)
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Núna hafa um 330 þátttakendur skráð sig til leiks á Sápuboltamótið á Ólafsfirði um helgina í 56 liðum. Þetta mun vera mesti fjöldi þátttakenda sem hafa tekið þátt hingað til. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í búningum en veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn. Sápustjórinn Ásgeir Frímannsson var á línunni.
Framkvæmdir við breikkun Reykjanesbrautar eru enn yfirstandandi eins og margir hafa eflaust orðið varir við. Vegagerðin segir að framkvæmdirnar gangi vel - en það hefur verið töluvert um hraðakstur á vinnusvæðinu; margir sem virða ekki hraðamörk og hættan auðvitað mikil fyrir vinnandi fólk þar. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, ræddi þetta við okkur, og einnig vegblæðingar víðs vegar á þjóðveginum sem hafa verið til umræðu - til dæmis í tengslum við mótmæli bifhjólafólks í vikunni.
Það er töluvert um covidsmit í samfélaginu núna. Á nokkrum deildum Landspítala hefur hreinlega geisað faraldur - bæði sjúklingar og starfsmenn hafa verið að smitast og það getur valdið röskun á daglegri starfsemi sjúkrahússins. Covidveiran er orðin svipuð og aðrar öndunarfæraveirur, sem hafa líka verið til vandræða í vetur, en er ástæða til að hafa sérstakar áhyggjur af covid? Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir sagði okkur nánar frá stöðunni.
Götubitahátíðin fer fram um helgina í Hljómskálagarðinum. Þetta er stærsti matarviðburður á Íslandi að sögn viðburðarhaldara. Á hátíðinni verða um 30 söluaðilar í matarvögnum og sölubásum og keppnin um Besta götubita Íslands 2024 fer einnig fram samhliða en sigurvegari þeirrar keppni tekur þátt í European Street Food Awards seinna á árinu. Róbert Aron Magnússon, sem sér um hátíðina, og Silli kokkur sem átti besta borgarann á Europe streetfood awards fyrir tveimur árum komu til okkar.
Lagalisti:
Bubbi Morthens - Háflóð
Fleetwood Mac - Sara
Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel
Mugison - Stóra stóra ást
The Stone Roses - Fools Gold
Baggalútur - Allir eru að fara í kántrí
Daði Freyr - Thank You
The La's - There She Goes
Plan B - She Said
Level 42 - Lessons In Love
Pet Shop Boys - Loneliness
Sólborg Guðbrandsdóttir fylgir hlustendum Rásar 2 til hádegis alla virka daga.
Frábær tónlist þennan fimmtudaginn.
Tónlist:
LAUFEY - From The Start.
Empire of the sun - Music On The Radio.
Bryan, Zach - Pink Skies.
STUÐMENN - Popplag Í G Dúr.
ELTON JOHN - Tiny Dancer.
FLEETWOOD MAC - Everywhere.
SELENA GOMEZ - Lose You To Love Me.
SVALA - The Real Me.
Inspector Spacetime - Dansa og Bánsa.
Dasha - Austin.
One Republic - I Ain't Worried.
THE SOURCE ft. CANDY STATON - You Got The Love (New Voyager Radio Edit).
SAM SMITH - I'm Not Here To Make Friends.
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - OK.
SKÍTAMÓRALL - Þú veist hvað ég meina mær.
Marcagi, Michael - Scared To Start.
Kaleo - Sofðu unga ástin mín.
Brimkló, Björgvin Halldórsson - Skólaball.
Combs, Luke - Fast Car.
Smith, Myles - Stargazing.
HELGI JÚLÍUS & VALDIMAR GUÐMUNDSSON - Þú ert mín.
Moses Hightower - Háa c.
Retro Stefson - Qween.
Ásdís, Purple Disco Machine - Beat Of Your Heart.
BAGGALÚTUR - Grenja.
Kári Egilsson - In the morning.
Á MÓTI SÓL - E?g verð að komast aftur heim.
Haraldur Ari Stefánsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson - Til þín.
Carpenter, Sabrina - Please Please Please.
KLARA ELIAS - Eyjanótt.
GDRN - Parísarhjól.
ARON CAN & FRIÐRIK DÓR - Hingað þangað.
Terrell, Tammi - Ain't no mountain high enough.
STUÐMENN - Elsku vinur.
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Veldu stjörnu (ft. John Grant).
JóiPé & Króli - Þráhyggja.
Klara Einarsdóttir - Þú ert svo.
HILDUR - Picture perfect.
NYLON - Bara Í Nótt.
FIRST AID KIT - My Silver Lining.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Söngkona - Töfrar.
Bomarz, PATRi!K, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Annan hring.
Emmsjé Gauti - Klisja.
DOLLY PARTON - Get Out And Stay Out.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Matvælaráðherra kveðst hafa áhyggjur af niðurstöðum skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um sjókvíaeldi. Hún hefur þó ekki gert upp við sig hvort hún leggur aftur fram frumvarp um lagareldi.
Ursula von der Leyen hefur verið endurkjörin forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til næstu fimm ára. 401 þingmaður Evrópuþinginu studdi hana í leynilegri atkvæðagreiðslu í morgun. Von der Leyen hefur gegnt þessari stöðu frá 2019.
Áhrifakona í Demókrataflokknum hefur tjáð Joe Biden Bandaríkjaforseta, að hún telji óhugsandi að hann sigri Trump í komandi kosningum. Hlé hefur verið gert á kosningabaráttu Bidens eftir að hann greindist með Covid í gær.
Sparneytnir tengiltvinnbílar og rafmagnsbílar greiða jafnhátt verð fyrir notkun vegakerfisins og bensínbílar í fyrirhuguðu kerfi þar sem kílómetragjald tekur við af bensíngjöldum. Verkefnastjóri segir þó áfram gert ráð fyrir fjárhagslegum hvötum til að nota umhverfisvæna orkugjafa.
Covid-smitum hefur fjölgað síðasta mánuðinn. Sóttvarnarlæknir segir að þrátt fyrir aukningu séu ekki merki um að veikindi séu alvarlegri.
Atli Örvarsson tónskáld er í sjöunda himni með Emmy-tilnefningu fyrir þættina Silo. Hann er á Akureyri að semja tónlist fyrir næstu seríu.
Hundavinir fagna degi íslenska fjárhundsins. Þórarinn Eldjárn hitti bjargvætt hundakynsins, breska auðmanninn Mark Watson í Glaumbæ í Skagafirði 1958. Þórarinn segir frá fundi þeirra í fréttatímanum.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar.
Umsjón: Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson, Kristján Freyr Halldórsson og Valdís Eiríksdóttir.
UNDIR er glænýtt, nærgöngult og ágengt leikrit eftir Adolf Smára Unnarsson sem gerist á neðanjarðarlestarstöð, rétt fyrir hádegi. Fimm einstaklingar bíða eftir næstu lest þegar þau taka eftir því að einhver liggur hreyfingarlaus á teinunum. Hrasaði hann þangað niður? Missti hann eitthvað? Er hann fullur? Dáinn? Það eru bara fjórar mínútur í lestina. Hvað gengur manninum til? Sýningin er undir hatti sviðslistahússins Afturámóti og verður frumsýnd í kvöld í Háskólabíó. Við fengum Adolf Smára til okkar.
Nú arkar fólk upp á fjöll og fyrnindi í sumarfríinu. Þá er mikilvægt að vera vel búinn með nesti og nýja skó en hvernig eiga byrjendur í fjallaferðum að bera sig að? Hvað er nauðsynlegt að eiga og hafa í bakpokanum? Inga Hrönn Sveinsdóttir úr Facebook-hópnum Fjallastelpur er með svörin og deildi með okkur.
Í dag stendur Sund og sjóbaðfélag Reykjavíkur ásamt Sundsambandi Íslands fyrir Opna Íslandsmótinu í víðavatnssundi. Sundið fer fram í Nauthólsvík þar sem boðið er upp á þrjár keppnisvegalengdir, 1, 3 og 5 kílómetra. Steiney kíkti á aðstæður og athugaði hvernig sundfólk undirbýr sig fyrir mót af þessum toga.
Einn af föstum liðum Hljóðvegarins í sumar er Ísbíltúrinn og í dag heimsótti Steiney söng- og leikkonuna Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur og færði henni heimsendan smoothie þar sem hún sinnir glænýju ungabarni heima við.
Húnavaka, bæjarhátíð Blönduósinga, hófst í gærkvöldi með tónleikum hinnar húnvetnsku Slagarasveitar og stendur hátiðin yfir alla helgina. Er þetta í tuttugasta sinn sem hátíðin er haldin og verður um nóg að velja fyrir gesti og gangandi. Við forvitnuðumst betur um Húnavöku hjá Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttur.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Sprenging varð í Leifsstöð í dag; og starfsmaður hlaut minni háttar áverka. Sprengjusveit Ríkislögreglustjóra er að störfum.
Slysasleppingar úr laxeldum ættu að kalla á leyfissviptingu, segir framkvæmdastjóri Landssamtaka veiðifélaga. Skýrsla Hafrannsóknarstofnunar um sjókvíaeldi
Forsætisráðherra Ísraels hefur stöðvað uppsetningu bráðabirgðasjúkrahúss sem varnarmálaráðherra landsins hafði samþykkt á Gaza.
Undirbúningur fyrir innsetningarathöfn forseta eftir tvær vikur er margslunginn en miðar vel. Sýnt verður frá athöfn í Alþingishúsinu á tveimur risaskjám á Austurvelli.
Það ríkti andi af Miðjarðarhafi hjá sigurvegurum í svalaskreytingarkeppni á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hærra hlutfall rafmagnsbíla og sparneytnari dísil-og bensínbíla hefur orðið til þess að tekjur stjórnvalda af olíu- og bensíngjöldum hafa dregist saman um 30% frá 2012, á sama tíma og umferð hefur aukist um 50% og álag á vegi að sama skapi. Nánast ekkert var greitt fyrir akstur á rafmagns- og tengiltvinnbílum en það breyttist um áramótin þegar tekið var upp gjald, 6 krónur á kílómetra fyrir rafmagns og vetnisbíla en 2 krónur fyrir tengiltvinnbíla. Auka á jafnræði og sanngirni með nýju kerfi um næstu áramót þar sem tekið verður kílómetragjald af öllum farartækjum í hlutfalli við þyngd þeirra, segir Ragnar Bjartmarz, verkefnastjóri Verkefnastofu um samgöngugjöld.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir
Kaktus Einarsson og Nanna - Be This Way
Þorsteinn Kári - Ómar
Margeir og Matthildur - Pink Matter
Bríet og Birnir - Lifa af
Máni og Leví - Fæ mér bjór
The Sweet Parade - Luck
Babies og Dagur Sigurðsson - Næsta hæð
Skoffín - Í útvarpinu
Tófa - Teach Me
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Snæbjörn er snúinn aftur úr reisu sinni og fögnuðu Ólátagarðsmenn því með aragrúa af grasrótartónlist allsstaðar að úr heiminum í bland við almenna stuðmúsik. Jói úr Skoffín kom svo í spjall og ræddi væntanlega plötu sveitarinnar sem kemur út í haust og einnig tónleika Skoffíns, Sameheads og K.óla sem fram fara á NASA þann 26. júlí næstkomandi.
Æskuminning - Fræbbblarnir
Sabotage - Beastie Boys
Bríaríi - Dr. gunni
Dreams - The Cranberries
Undantag - Dina Ögon
Maðurinn - Ég
Mandinka - Sinead O'Connor
Unglingaveiki (short) - Hasar
Sommar - KUSK
Lúlli - Dópamín
Sex on a cloud - K.óla
Breytist seint - Una Schram
I Think About It All The Time - Charli XCX
Visa mig - Ayla
Síðasti bærinn í dalnum - Skoffín
Rottur - Skoffín
Guttamenning - Skoffín
Í Útvarpinu - Skoffín
Pressa - Plasticboy
Stingum af - Aníta
Ætti ekki - Klara Einarsdóttir
Damdiggida - KEiiNO
Lever Livet - Kamelen
Bara vera - Young Nazareth
Rúmdin - RSP
The spark - Kabin Crew
Som Jag - Bladee
TRAFIK! - Kaarija
Au seve - Julio Bashmore
We Invented Love - Dorian Electra
Set mig í gang - Gísli Pálmi
aldrei séð guð - SMJÖRVI
HEAVY - SXEF
1 sec - Novelist x Mumdance
GREPPIKLÓ - TOMI G
KLÍSTRIÐ - Flyguy
Clash! - Dave & Stormzy
Sama hvað - Elli Grill & JóiPé
Do You - Amor Vincit Omnia
Í þessum þáttum er skoðuð saga íslensku útihátíðarinnar sem var hér allsráðandi í sumarstemningunni á ofanverðri síðustu öld. Farið verður í ferðalag aftur í tímann með viðkomu í Atlavík, Húnaveri, Eldborg, Herjólfsdal og víðar. Fjöldi góðra gesta koma í þáttinn og segja sögur af liðnum útihátíðum sem ýmist gengu vel eða ekki eins vel.
Umsjón og dagskrárgerð: Áskell Heiðar Ásgeirsson.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Verkefnið var unnið í samvinnu við Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra.
Í öðrum þætti tökum við fyrir blómatíma íslensku útihátíðanna sem haldnar voru í fögrum skógarrjóðrum fjarri þéttbýlinu um land allt um Verslunarmannahelgarnar á níunda áratug síðustu aldar. Stuðmenn og Ringó í Atlavík, Bindindismót í Galtalæk, risahátíðir í Húnaveri og stöðugt fjör á Þjóðhátíð.
Viðmælendur í þættinum eru Erla Ragnarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Magnús Kjartansson, Sigríður Beinteinsdóttir og Felix Bergsson.
Tónlistin í þættinum:
Ó Reykjavík - Sjálfsfróun
Fjöllin hafa vakað - EGO
Fornaldarhugmyndir - Lóla
Pamela - Dúkkulísur
Steini með Skriðjöklum
Elísa - Súellen
Sósa og salat - Stuðmenn
Þar sem hjartað slær: Fjallabræður
Lífið er yndislegt - Hreimur og fleiri
Blindsker - Bubbi og MX 21
Try for your best friend - KIKK
Tunglskinsdansinn - Stuðkompaníið
Apaspil - Nýdönsk
Birthday - Sykurmolarnir
Vertu þú sjálfur - SS Sól
Sódóma - Sálin hans Jóns míns
Umsjón og dagskrárgerð: Áskell Heiðar Ásgeirsson.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
![5110](/spilari/DarkGray_image.png)
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.