Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Oft eru vinnubrögðin á Alþingi gagnrýnd, það er gert af ýmsum ástæðum og af misalvarlegu tilefni. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur er einn þeirra sem hefur mikinn áhuga á störfum þingsins, og hann gaf í síðustu viku út nýja bók þar sem hann ber saman íslenska og danska þingið, bæði í fortíð og nútíð, þegar kemur að því að setja lög. Hann sagði okkur frá rannsókn sinni.
Svo fórum við til útlanda; fyrst vorum við í Evrópu með Birni Malmquist fréttamanni. Leiðtogar Evrópusambandsins hittast í Brussel síðar í vikunni og við röbbuðum um þann fund og ýmislegt fleira.
Í síðasta hluta þáttarins fórum við til Kína, í huganum. Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrir mánuði þegar við spjölluðum svolítið um Kína við Magnús Björnsson hjá Konfúsíusarstofnuninni í tilefni áramótanna þar í landi. Hagur fólksins og fyrirséð fólksfækkunn voru á dagskrá í dag.
Tónlist:
Mamas and Papas - Dedicated to the one I love.
Anna Sóley - I Just Smile.
Sálgæslan Hljómsveit - Hvernig sem fer.
Hoff, Jan Gunnar - The years.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Söngvarinn og trommarinn Ari Jónsson syngur íslensk dægurlög í þættinum. Hann lögin Tifar tímans hjól, Ég skemmti mér og Þegar sólin sest eftir Geirmund Valtýsson, Ég man það vel eftir Karl B. Örvarsson, Mánadísin eftir Jón Jónsson frá Hvanná, Þú ert vagga mín haf eftir Tólfta september, Ég er á leiðinni eftir Magnús Eiríksson, Ég hvísla yfir hafið og Kátur ég geng eftir Gylfa Ægisson og Á hundrað eftir Jóhann G. Jóhannsson.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Öll finnum við fyrir einmanaleika einhvern tíma á lífsleiðinni. Sum upplifa hann aðeins tímabundið, hjá öðrum er hann viðvarandi en hann snertir líf okkar allra með einhverjum hætti. Í Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar fjallar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir um einsemdina frá fjölmörgum hliðum. Hún skoðar hver eru einmana, hvenær og af hverju en leitast líka við að varpa ljósi á það sem einmanaleikinn getur kennt okkur og hvernig bregðast megi við honum. Við ræddum við Aðalbjörgu í þættinum.
Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallar meðal annars um menningarferð í kvikmyndahús, hláturpokann og uppfinningamanninn Walter Thiele, um það að mynda sér skoðun á málum sem tekist er á um á samfélagsmiðlum með einar saman tilfinningar til grundvallar, um athugasemdir á samfélagsmiðlum og um gildi þess að líta í eigin barm.
Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Valgerður Garðarsdóttir forstöðumaður námsvers Menntaskólans við Hamrahlíð. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Valgerður sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
Vonin, akkeri fyrir sálina. Kjarnyrðabók e. sr. Þorvald Víðisson.
Valskan. Skáldsaga byggð á heimildum um formóður höfundar sem uppi var á síðari hluta 18. aldar. Eftir Nönnu Rögnvaldsdóttur.
Engan þarf að öfunda, daglegt líf í Norður Kóreu. Barbara Demick bandarískur blaðamaður skrifaði bókina eftir samtöl við fólk sem flúið hafði frá N-Kóreu til S-Kóreu. Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murtata, Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
Bækur sem kveiktu lestraráhuga Valgerðar í æsku.
Pabbi, mamma, börn og bíll, og framhald hennar e. Anne-Cath Vestly.
Tónlist í þættinum:
Vor í Vaglaskógi / Friðrik Ómar og Pálmi Gunnarsson (Jónas Jónasson og Kristján frá Djúpalæk)
Ég mun bíða þín / Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson á píanó (Michel Legrand og Bragi Valdimar Skúlason)
Ferry Cross the Mersey / Gerri and the Pacemakers
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bankastjóri Landsbankans segir að ekki verði fallið frá kaupum bankans á TM tryggingum þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu fjármálaráðherra.
Ekki er lát á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Virkni er mest syðst á gossprungunni. Syðsta hrauntungan er um 300 metra frá Suðurstrandarvegi en hreyfist hægt.
Vélbyssur, skammbyssur og ólöglegir skotgeymar er meðal þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á við húsleit í síðustu viku. Íslenskur karlmaður situr í varðhaldi í Bandaríkjunum grunaður um smygl á skotvopnum hingað til lands.
Kjörstjórn í Rússlandi hefur formlega lýst Vladimír Pútín réttkjörinn forseta. Ráðamenn á Vesturlöndum segja kosningar um helgina ómarktækar.
Vopnahlésviðræður vegna stríðsins á Gaza hefjast að nýju í Katar í dag. Ísralesmenn hófu árásir við stærsta sjúkrahúsið í Gazaborg í morgun.
Mikil ófærð er á Vestfjörðum og víða hafa vegir verið lokaðir síðan á laugardag. Ekki verður mokað í dag. Appelsínugul viðvörun gildir fyrir Vestfirði og óvissustig vegna snjóflóðahættu.
Tveir menn úr sænsku glæpagengi voru skotnir á kaffihúsi í Istanbul í Tyrklandi. Annar þeirra lést af sárum sínum. Þrír sáust flýja af vettvangi og eru grunaðir um verknaðinn.
Héðinn Steingrímsson er með fullt hús, 4 vinninga af 4 mögulegum, á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Fríar skólamáltíðir hafa verið pólitískt bitbein í áraraðir en urðu til þess að koma á friði í Karphúsinu á dögunum. Þóra Tómasdóttir ræddi fríar skólamáltíðir við sveitarstjórnarfólk og heyrði hvernig fyrirkomulagið hefur reynst í Þingeyjarsveit og Svalbarðsstrandahreppi.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um nýsköpun og sprota. Klak er félag í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Origo, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Og það eru ýmsar leiðir til þess. Meðal annars svokallaðir viðskiptahraðlar. Einn slíkur er kallaður Hringiða og þar er lögð áhersla á að draga fram, efla og styðja við græn Og svo fórum við í heimsókn á þjóðskjalasafn íslannýsköpunarverkefni á frumstigi. Níu sprotafyrirtæki taka þátt í Hringiðu árið 2024 og þar á meðal er Í djúpum sem vinnur að því að hagnýta hrossatað. Begga Rist fer því verkefni, hún ræðir við okkur ásamt Jennu Björk Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Hringiðu.
Við lítum við á rannsóknarstofu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og spjöllum við þau Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamann, og Rebekku Hlín Rúnarsdóttur, tæknimann. Þau voru í óðaönn við að greina glæný hraunsýni sem tekin voru við hraunjaðarinn ofan Suðurstrandarvegar í gær.
Heimsókn á Þjóðskjalasafn. Karen Sigurkarlsdóttir, forvörður á Þjóðskjalasafninu, fræðir okkur um forvörslu og sýnir okkur uppdrætti af reykvískum lóðum frá miðri nítjándu öld.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Jóhann Sigfússon, kvikmyndagerðarmaður, segir frá samstarfi sínu við danskan leikstjóra, sem leiddi til þess að Jóhann hefur gert nokkrar heimildamyndir um tælenska fílinn.
Umsjón: Magnús R. Einarsson.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í dag gerum við eins og á vídjóleigunum í gamla daga, tökum eina nýja og eina gamla. Tvær skáldsögur sem báðar fjalla um fólk á fyrri öldum, um og eftir aldamótin 1900, og ekki á ósvipuðum slóðum.
Skáldsagan Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M. Bjarnason kom út fyrir jólin og var hún tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar fer Bjarni með okkur í ferðalag í tíma og rúmi, austur á Langanes á 19. öld og fram yfir aldamót en þar segir frá draumförum Jóhannesar Jónssonar, Drauma-Jóa, sem uppi var í raun og veru og sagður búa yfir mikilli fjarskyggnigáfu. Bjarni kemur og heimsækir okkur í síðari hluta þáttar og segir frá þessum einstaka manni og örlögum hans.
Svo verður eitt stykki Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness hér á borðum. Hún er skrifuð um það leyti sem útrás Halldórs var að hefjast og þýðingar á skáldsögum hans fóru að birtast hér og þar. Dönsk þýðing á Sjálfstæðu fólki var gefin út um ári eftir að hún kom út hér og var hún eftir fræðimanninn og jafnaldra Halldórs Jakob Benediktsson. Nú hefur bókaforlag í Árósum þýtt verkið upp á nýtt á dönsku, þýðandinn Nanna Kalkar var hér á landi og við hittum hana og spyrjum hvað það þýði fyrir bækur að vera endurþýddar og hvernig Sjálfstætt fólk ber sig í dag en 90 ár eru í ár frá fyrstu útgáfu hennar.
Viðmælendur: Bjarni M. Bjarnason og Nanna Kalkar.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Sýningin Pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi, var opnuð um liðna helgi í Þjóðminjasafninu. Þar gefur að líta brot af því efni sem þegar hefur borist Þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins sem nú vinnur í því að safna frásögnum Pólverja af Íslandi. Við lítum inn á Þjóðminjasafnið og ræðum við þær Ágústu Kristófersdóttur og Önnu Wojtynska um rannsóknina og sýninguna í þætti dagsins.
Eva Halldóra Guðmundsdóttir leikhúsrýnir fór að sjá X eftir breska leikskáldið Alistair Mcdowall, í Borgarleikhúsinu um liðna helgi og segir frá.
Tríóið ATM sendi nýverið frá sér kassettu sem nefnist 1452 eða 14:52 eða 1.4.5.2 eða 1.452 - titillinn er ekki alveg skýr en plötuna má einnig nálgast á Bandcamp síðu sveitarinnar. ATM vísar meðal annars í upphafsstafi meðlima tríósins, þeirra Ara Franks Ingusonar, Tuma Torfasonar og Moritz Christiansen. Við ræðum við Ara Frank um kassettuna í þættinum.
Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Nú á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, að minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er að setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og nú er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm tuttugu ár eru liðin, hvað hefur breyst? Við ræðum sértrúarsöfnuði og ákallið í verkinu við leikstjórann Grétu og leikkonuna Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem fer með hlutverk Ástu í verkinu.
En við byrjum í Hörpu.
Það var margt um dýrðir í Norðurljósasal Hörpu síðastlðið laugardagskvöld á Úrslitakvöldi Músíktilrauna, sem haldnar voru í fertugasta sinn í ár, fjörutíu og tveimur árum eftir að þessi merka hátíð var fyrst sett á laggirnar 1982. Sigurhljómsveitin í ár heitir Vampíra, og leikur nístingskaldan, gotneskan svartmálm.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
18. mars 2024
Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. Sá eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess að hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt né muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir þegar enn fór að gjósa í Sundhnúksgígum og hefur um sex ferkílómetra hraun komið upp. Hrauntunga fór yfir Grindavíkurveg aðfaranótt sunnudags og önnur nálgast Suðurstrandarveg. Hættuleg gasmengun mældist við orkuverið í Svartsengi og það var rýmt fyrr í dag. Þá voru þar fimm að störfum en þeir gátu snúið fljótlega aftur. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir að óvissan sem Grindvíkingar hafa búið við lengi sé farin að taka sinn toll, og hún upplifir ekki gos sem áhrifamikið sjónarspil. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.
Það fór eins og margan grunaði að Vladimír Pútín sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum í Rússlandi í gær. Pólitískir andstæðingar hans voru hvort sem er ýmist í fangelsi, flúnir úr landi eða gengnir á vit feðra sinna. Kjörstjórn tilkynnti í dag að hann hefði fengið 87,28 prósenta fylgi. Mótframbjóðendur hans sem enginn man hvað heita fengu 4,31, 3,85 og 3,2 prósent. Ásgeir Tómasson segir frá.
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla og Karitas ræða við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann og Karitas M. Bjarkadóttir.
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? fræðast þær Embla og Karitas um fyrsta Kvennafrídaginn sem var haldinn árið 1975 með því að lesa nýjustu bók Lindu Ólafsdóttur, Ég þori! Ég get! Ég vil!
Linda kíkir einmitt við og ræðir við þær stöllur um bókina, hvernig hún varð til og hvernig henni hefur verið tekið. Hún kennir þeim líka að byrja að æfa sig í að teikna og svo mætir bókarormurinn Sara Bóel auðvitað líka og segir hvernig henni fannst bókin.
Veðurstofa Íslands.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið 17. mars 2024
Umsjón Guðni Tómasson
Í þættinum er fjallað um tónlist fyrri alda (early music) og sagt frá Reykjavík Early Music Festival sem haldin verður í dimbilvikunni í fyrsta sinn í Hörpu en Elfa Rún Kristinsdóttir listrænn stjórnandi hátíðarinnar er tekin tali. Einnig verður sagt frá rannsóknum Kjartans Óskarssonar og Jóhannesar Ágústssonar á verkum Jans Dismas Zelenka.
Viðmælendur í þættinum eru:
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari
Kjartan Óskarsson klarinettuleikari og tónlistargrúskari.
Tónlistin í þættinum:
Arte Dei Suonatori leikur forleik aftir Johann Adolf Hasse.
Barokksvetin brák leikur brot úr kafla í A-moll fiðlukonserti Johanns Sebastians Bach. Elfa Rún leikur einleik.
Amaconsort leikur brot úr Amasque eftir William Lawes og óþekktan höfund.
Rachel Podger og The Academy of Ancient Music leika, undir stjórn Andrews Manze A-moll fiðlukonsert Johanns Sebastians Bach.
Tveir kaflar hljóma úr Statio Quadruplex Pro Processione Theophonica (Fjórar stöðvar fyrir helgigöngu með trúarsöngvum) eftir Jan Dismas Zelenka. Upptaka gerð i Skálholtskirkju síðasta sumar. Flytjendur eru: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran, David Erler, kontratenór, Benedikt Kristjánsson, tenor, Oddur Arnþór Jónsson, bassi, Kammerkór sumartónleikana, Barrokkbandið Brák. Stjórnandi: Jana Semerádová
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um nýsköpun og sprota. Klak er félag í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Origo, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Og það eru ýmsar leiðir til þess. Meðal annars svokallaðir viðskiptahraðlar. Einn slíkur er kallaður Hringiða og þar er lögð áhersla á að draga fram, efla og styðja við græn Og svo fórum við í heimsókn á þjóðskjalasafn íslannýsköpunarverkefni á frumstigi. Níu sprotafyrirtæki taka þátt í Hringiðu árið 2024 og þar á meðal er Í djúpum sem vinnur að því að hagnýta hrossatað. Begga Rist fer því verkefni, hún ræðir við okkur ásamt Jennu Björk Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Hringiðu.
Við lítum við á rannsóknarstofu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og spjöllum við þau Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamann, og Rebekku Hlín Rúnarsdóttur, tæknimann. Þau voru í óðaönn við að greina glæný hraunsýni sem tekin voru við hraunjaðarinn ofan Suðurstrandarvegar í gær.
Heimsókn á Þjóðskjalasafn. Karen Sigurkarlsdóttir, forvörður á Þjóðskjalasafninu, fræðir okkur um forvörslu og sýnir okkur uppdrætti af reykvískum lóðum frá miðri nítjándu öld.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Söngvarinn og trommarinn Ari Jónsson syngur íslensk dægurlög í þættinum. Hann lögin Tifar tímans hjól, Ég skemmti mér og Þegar sólin sest eftir Geirmund Valtýsson, Ég man það vel eftir Karl B. Örvarsson, Mánadísin eftir Jón Jónsson frá Hvanná, Þú ert vagga mín haf eftir Tólfta september, Ég er á leiðinni eftir Magnús Eiríksson, Ég hvísla yfir hafið og Kátur ég geng eftir Gylfa Ægisson og Á hundrað eftir Jóhann G. Jóhannsson.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Nú á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, að minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er að setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og nú er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm tuttugu ár eru liðin, hvað hefur breyst? Við ræðum sértrúarsöfnuði og ákallið í verkinu við leikstjórann Grétu og leikkonuna Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem fer með hlutverk Ástu í verkinu.
En við byrjum í Hörpu.
Það var margt um dýrðir í Norðurljósasal Hörpu síðastlðið laugardagskvöld á Úrslitakvöldi Músíktilrauna, sem haldnar voru í fertugasta sinn í ár, fjörutíu og tveimur árum eftir að þessi merka hátíð var fyrst sett á laggirnar 1982. Sigurhljómsveitin í ár heitir Vampíra, og leikur nístingskaldan, gotneskan svartmálm.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Ingvar Þór Björnsson og Hulda Geirsdóttir.
Við byrjuðum á einum af vorboðunum ljúfu, þ.e. að kynna okkur sumarstörf Nordjobb. Viktor Ingi Birgisson er svokallaður Nordjobb sendiherra og hann sagði okkur frá tækifærum og ævintýrum erlendis sem standa ungu fólki til boða.
Menningar- og viðskiptaráðherra hefur sent í samráð drög að lagabreytingu á Listamannalaunum. Breytingarnar fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Auk þess sem lagt er til að þremur nýjum sjóðum verði bætt við kerfið. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra menningarmála ræddi þessi mál við okkur.
Nokkur umræða hefur verið um vopnalagabrot og skotvopnaeign hér á landi undanfarið. Við fórum yfir þau mál með Ívari Pálssyni, formanni Skotveiðifélags Íslands.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði fór yfir stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga.
Við tókum léttan íþróttasprett eins og alltaf á mánudögum og að þessu sinni var það Gunnar Birgisson sem tók sprettinn með okkur.
Deilt var um það í lok síðustu viku hvort íslenskukunnátta ætti að verða skilyrði leigubílaleyfis - en greint var frá því að áform væru uppi á Alþingi um framlagningu frumvarps þess efnis. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku við Háskóla Íslands, gagnrýnir þessar hugmyndir og kallar eftir því að stöðva áform um misnotkun íslenskunnar. Hann var gestur okkar.
Tónlist:
Hljómar - Ég elska alla.
Kim Larsen - De smukke unge mennesker.
Lenny Kravitz - Stand by my woman.
Sigurður Guðmundsson og Tómas R. - Blánótt.
Kasper Björke, Sísí Ey og Systur - Conversations.
Jónfrí - Andalúsía.
Beyoncé - Texas Hold'em.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Hjartagosar fengu þrjár skvísur í heimsókn í morgun. Unnur Birna Backman. Silja Rós og Tanja Björk skrifa og leika í nýjum sjónvarpsþáttum hjá Sjónvarpi Símans, Skvízur sem verða frumsýndir 27. mars.
Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður kíkti með þrjú lög frá árinu sem hann telur vera Gullárið í íslenskri dægurlagasögu.
Lagalisti þáttarins:
BOGOMIL FONT - Farin.
NEIL DIAMOND - Girl, You'll Be a Woman Soon.
COLDPLAY - Talk.
STUÐMENN - Vorið.
EMILÍANA TORRINI - Jungle Drum.
MANIC STREET PREACHERS - If You Tolerate This Your Children Will Be Next.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Could You Be Loved.
Ensími - Away.
Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim.
Laufey, Beabadoobee - A Night To Remember.
Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig).
Silja Rós Ragnarsdóttir - Honey....
WHITE TOWN - Your Woman.
Benni Hemm Hemm, Kórinn - Valið er ekkert.
PEARL JAM - Jeremy.
TALK TALK - Life's What You Make It (80).
Helgi Björnsson - E?g stoppa hno?ttinn með puttanum.
LENNY KRAVITZ - Dig In.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Fjöllin og fjarlægðin.
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Myndi falla.
OTIS REDDING - (Sittin' On) The Dock Of The Bay.
DAVID BOWIE - Golden Years.
SYKURMOLARNIR - Top Of The World.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Sódóma.
HAM - Partýbær.
Murad, Bashar - Wild West.
Bubbi Morthens - Aldrei Fór Ég Suður.
ARCTIC MONKEYS - Do I Wanna Know?.
INSPECTOR SPACETIME & UNNSTEINN - Kysstu mig (feat. Unnsteinn).
Sakaris - Allarbesti.
Bruce Springsteen - Human Touch
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bankastjóri Landsbankans segir að ekki verði fallið frá kaupum bankans á TM tryggingum þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu fjármálaráðherra.
Ekki er lát á eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Virkni er mest syðst á gossprungunni. Syðsta hrauntungan er um 300 metra frá Suðurstrandarvegi en hreyfist hægt.
Vélbyssur, skammbyssur og ólöglegir skotgeymar er meðal þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á við húsleit í síðustu viku. Íslenskur karlmaður situr í varðhaldi í Bandaríkjunum grunaður um smygl á skotvopnum hingað til lands.
Kjörstjórn í Rússlandi hefur formlega lýst Vladimír Pútín réttkjörinn forseta. Ráðamenn á Vesturlöndum segja kosningar um helgina ómarktækar.
Vopnahlésviðræður vegna stríðsins á Gaza hefjast að nýju í Katar í dag. Ísralesmenn hófu árásir við stærsta sjúkrahúsið í Gazaborg í morgun.
Mikil ófærð er á Vestfjörðum og víða hafa vegir verið lokaðir síðan á laugardag. Ekki verður mokað í dag. Appelsínugul viðvörun gildir fyrir Vestfirði og óvissustig vegna snjóflóðahættu.
Tveir menn úr sænsku glæpagengi voru skotnir á kaffihúsi í Istanbul í Tyrklandi. Annar þeirra lést af sárum sínum. Þrír sáust flýja af vettvangi og eru grunaðir um verknaðinn.
Héðinn Steingrímsson er með fullt hús, 4 vinninga af 4 mögulegum, á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Þéttur þáttur að vanda, allskonar tónlist og tónlistarfréttir. Plata vikunnar kynnt til leiks, Fuel to Escape með hljómsveitinni Ensími. Lovísa var við stjórnvölin í þættinum og kynnti hlustendur fyrir TikTok tónlist, nýrri þjóðlagatónlist frá Bandaríkjunum og nýju íslensku efni.
Julian Civilian - Fyrirmyndarborgari.
Electric Light Orchestra - Strange magic.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
Rogers, Maggie - Don't Forget Me.
Drugdealer, Bollinger, Kate - Pictures of You.
HELGI JÚLÍUS & VALDIMAR GUÐMUNDSSON - Þú ert mín.
Helgi Björnsson - Himnasmiður.
Jóhann G. Jóhannsson - Don't Try To Fool Me.
Silja Rós Ragnarsdóttir - Honey....
Parks, Arlo, Lous and The Yakuza - I'm Sorry.
GKR, Tatjana - Þykir það leitt.
BLUR - Country House.
Ensími - New leaf.
Lipa, Dua - Training Season.
Shygirl, SG Lewis - Mr useless.
Klangkarussell - Sonnentanz (radio edit).
Kiriyama Family - Weekends.
Djo - End of Beginning.
Electric Youth, College - A Real Hero.
PLÁHNETAN & BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Ég Vissi Það.
McKenna, Declan - Slipping Through My Fingers.
SIGRID - Don't kill My Vibe.
McRae, Tate - Greedy.
Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights.
FLOTT - L'amour.
DIDO - Thank You.
Kjerúlf - Alice.
Lykke Li - Utopia (bonus track mp3).
OF MONSTERS & MEN - Little Talks.
Spacestation - Fokking lagið.
EGÓ - Í hjarta mér.
Árni Bergmann Jóhannsson, Guðmundur R - Orð gegn orði.
Musgraves, Kacey - Deeper Well.
UNUN - Lög Unga Fólsins.
Vampire Weekend - Capricorn.
Alex Ebert - Truth.
KHRUANGBIN - Texas Sun (ft. Leon Bridges).
Lenker, Adrianne - Sadness As A Gift (Radio Edit) (bonus track wav).
Laufey - Goddess.
THE VELVET UNDERGROUND & NICO - Sunday Morning.
ED SHEERAN - Celestial.
Ensími - In front.
HARRY STYLES - Satellite.
Systur, Bjørke, Kasper, Sísý Ey Hljómsveit - Conversations.
Jones, Norah - Running.
Una Torfadóttir - Um mig og þig.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Undanfarið hefur mikið verið fjallað um fyrirtækið Base Parking sem býður farþegum á leið til útlanda að geyma bílinn gegn gjaldi og fólk getur einnig pantað aukaþjónustu svo sem eins og þrif, skoðun ofl. Það sem fólk hefur verið að skrifa um og er ósátt með er t.d. að fyrirtækið virðist hafa týnt bíllyklum, fólk þarf að bíða óhóflega lengi þegar kemur að því að fá bíl og lykla afhenta og svo mætti áfram telja. Við ræðum í dag við konu sem átti viðtskipti við fyrirtækið en hún hefur nú fengið rukkun í heimabanka fyrir utan gjaldið sem hún greiddi og bílnum hennar virðist hafa verið lagt á bílastæði Isavia. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ætlar svo í kjölfarið að fara yfir þessi mál og hvað fólk þarf að hafa í huga áður en bíllyklar eru afhentir.
Starfshópur sem innviðaráðherra skipaði til að móta borgarstefnu leggur til að Akureyri verði næsta borg á Íslandi Við heyrum í Ingvari Sverrissyni á eftir en hann er formaður starfshópsins og spyrjum hann nánar út í þetta.
Það syttist í páska og eflaust ætla sumir að nota tækifærið og skella sér í frí erlendis. Tenerife er vinsæll áfangastaður sólþyrstra íslendinga og því ekki ólíklegt að einhverjir ætli að skella sér þangað á næstu dögum til að sóla sig og njóta lífsins. En það er hægt að gera ýmislegt fleira en að liggja í sólbaði á Tene og sú sem veit allt um það er Snæfríður Ingadóttir sem dvelur langdvölum á eyjunni og gerir upp hús en auk þess var hún að senda frá sér rafbók með 33 gönguleiðum um eyjuna. Við heyrum í Snæfríði í þættinum og forvitnumst meira um þetta allt saman.
Það styttst í páska og þá er eins gott að öll bankahólf séu full í blóðbankanum - Ína Björg Hjálmarsdóttir deildarstjóri Blóðbankans verður á línunni hjá okkur og segir okkur frá því hvernig fólk á að bera sig að vilji það gefa blóð og hverjir mega gefa blóð.
Saga Úlfarsdóttir mætir til okkar á eftir til að segja okkur frá ferðavefnum Guide to Europe en á vefnum er hægt að setja saman heildarferðir með aðstoð gervigreindar. Saga sem er vörustjóri hjá Guide to Europe veit miklu meira um málið og segir okkur betur frá á eftir.
Benedikt Sigurðsson hefur verið við gosstöðvarnar í dag og hann er á línunni.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
18. mars 2024
Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. Sá eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess að hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt né muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir þegar enn fór að gjósa í Sundhnúksgígum og hefur um sex ferkílómetra hraun komið upp. Hrauntunga fór yfir Grindavíkurveg aðfaranótt sunnudags og önnur nálgast Suðurstrandarveg. Hættuleg gasmengun mældist við orkuverið í Svartsengi og það var rýmt fyrr í dag. Þá voru þar fimm að störfum en þeir gátu snúið fljótlega aftur. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir að óvissan sem Grindvíkingar hafa búið við lengi sé farin að taka sinn toll, og hún upplifir ekki gos sem áhrifamikið sjónarspil. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.
Það fór eins og margan grunaði að Vladimír Pútín sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum í Rússlandi í gær. Pólitískir andstæðingar hans voru hvort sem er ýmist í fangelsi, flúnir úr landi eða gengnir á vit feðra sinna. Kjörstjórn tilkynnti í dag að hann hefði fengið 87,28 prósenta fylgi. Mótframbjóðendur hans sem enginn man hvað heita fengu 4,31, 3,85 og 3,2 prósent. Ásgeir Tómasson segir frá.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á mánudögum er sulta dagsins soul, jazz og annað sem grúvar.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Vika 12 kominn í gang og það þýðir ný tónlist á Kvöldvaktinni og meðal þeirra sem mæta með ný lög eru Una Torfa, Emelíanna Torrini, Kanye West, The Black Keys, St. Vincent, Nick Cave & the Bad Seeds, AG Cook og mörgum fleirum.
Lagalistinn
Una Torfadóttir - Um mig og þig.
Shins, The - Pink bullets.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
50 CENT - P.I.M.P..
Ty Dolla $ign, Kanye West - Carnival
Jawny - Running.
Elbow - Lovers' Leap.
XTC - Making Plans For Nigel.
Black Keys - This Is Nowhere
MORRISSEY - Back On The Chain Gang.
Chapman, Tracy - Give me one reason
Noah Kahab, Sam Fender- Homesick.
Hurray For The Riff Raff - Alibi.
Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version).
Kings of Leon - Mustang.
R.E.M. - The One I Love.
Spacestation - Fokking lagið.
Matching Drapes - Dramatic.
Hasar - Drasl.
Hera - Scared Of Heights.
Twenty one pilots - Overcompensate
Systur, Sísý Ey Kasper Bjørke - Conversations.
CHEMICAL BROTHERS - Got to keep on.
Justice - Incognito.
FRANKIE KNUCKLES - The Whistle Song
Future Islands - The Thief.
DEPECHE MODE - Cover me (Dominatrix Remix).
A.G. Cook - Britpop
Arab Strap - Bliss.
St. Vincent - Broken Man.
Nine Inch Nails - Came back haunted.
KETTAMA, Underworld - Fen Violet
Geislar - Sunspot.
Bon Iver - AUATC.
Iron and Wine, Fiona Apple - All In Good Time
Rogers, Maggie - Don't Forget Me.
Waxahatchee - Bored
World Party - Sooner Or Later
Ratboys - Morning Zoo
Lada Sport - Ólína
Nick Cave and the Bad Seeds - Wild God
Tónlist að hætti hússins.