Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi sem kveður á um breytingar á reglum um nafnbreytingar einstaklinga sem hafa verið dæmdir fyrir alvarleg afbrot. Markmiðið er meðal annars að skýra heimildir stjórnvalda við afgreiðslu slíkra umsókna. Flutningsmaður frumvarpsins er Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins og við heyrðum í honum.
Augu heimsins beindust á ný að Mið-Austurlöndunum um helgina. Í gærkvöldi hófu Íranar flugskeytaárásir á Ísrael til að hefna fyrir árásir þeirra síðarnefndu á Líbanon. Þetta eru fyrstu árásirnar af þessum toga frá því að vopnahlé tók gildi í byrjun apríl. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, kom til okkar og fór yfir stöðuna í heimshlutanum.
Stelpurnar okkar mæta á morgun heimsmeisturum kvenna í knattspyrnu, spænska landsliðinu, á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Spænska liðið er talið það sterkasta í heimi um þessar mundir en það skartar leikmönnum á borð við Aitana Bonmatí og Alexiu Putellas (Púteijas). Spænsku stelpurnar völtuðu yfir Evrópumeistarana á föstudaginn. Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fótboltakona og forseti hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, og Almarr Ormarsson íþróttafréttamaður fóru yfir leikinn fram undan með okkur.
Ný skýrsla um öryggi orkuinnviða á norðurlöndum var nýlega birt en skýrsluna vann Economic Security Forum fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar og Nordisk Energiforskning. Í skýrslunni eru settar fram 25 tillögur um hvernig Norðurlöndin geti unnið saman að því að styrkja orkuöryggi. Finnur Beck, framkvæmdastóri Samorku, ræddi við okkur um niðurstöðu hennar og þær ógnir sem norræna orkukerfið stendur frammi fyrir.
Ísland stendur í raun frammi fyrir tveimur meginkostum: að halda áfram með sjálfstæðan gjaldmiðil, krónuna eða taka upp evru með aðild að Evrópusambandinu. Þetta eru niðurstöður skýrslu eftir hóp erlendra sérfræðinga, sem fjármálaráðuneytið gaf út í lok maí.
Skýrslan hefur vakið upp talsverða umræðu og gagnrýni. Einn þeirra, Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna, segir verulega ágalla á henni um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Konráð kom til okkar og ræðir þessi mál.
Opnunarhátíð alþjóðlegu listahátíðarinnar Stórsjór eða Oceanus verður um næstu helgi á Eyrarbakka. Í einn mánuð, einu sinni á ári, mæta listamenn á Eyrarbakka frá hinum ýmsu þjóðum og víðs vegar að af landinu. Þau vinna verk sín á staðnum í alls kyns skemmum og skúrum og sækja innblástur úr nærsamfélaginu. Þetta er í fimmta sinn sem listamaðurinn Ásta Guðmundsdóttir, sem jafnframt er sýningarstjóri hátíðarinnar, heldur hana. Tilgangur hátíðarinnar er að efla listsköpun á svæðinu, mynda tengsl við aðra menningarheima og fá sýn annarra á samfélagið við sjávarsíðuna. Ásta Guðmundsdóttir var á línunni.
