07:03
Morgunútvarpið
Hold,þrekvirki í Lagarfljóti,þetta reddast og ungmenni á brókinni í sund

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Hann ætlar að synda af stað um leið og aðstæður leyfa en tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna. Sigurgeir var á línunni.

Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir. Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Brynhildur Björnsdóttir veltir þessum spurningum fyrir sér í þættinum Hold á Rás 1 og hún kom til okkar.

Morgunblaðið greindi frá því á dögunum það væri í tísku að fara í sund í nærbuxunum. Í fréttinni sagði forstöðumaður Laugardalslaugar að þessi tíska hafi valdið vandræðum í hreinsikerfum sundlauga enda telst fatnaðurinn ekki viðurkenndur sundfatnaður. Vandamálið teygir anga sína víða og á Akureyri hefur Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar, sömu sögu að segja. Hann mætti í hljóðstofu RÚV á Akureyri og spjallaði við okkur.

Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns láta allt flakka og langflest er dagsatt í sýningunni Þetta reddast, sem fer á svið í Bæjarbíói í október. Sýningin fylgir eftir Bíddu bara, sem var feykivinsæl sýning á sínum tíma en nú hefur bara svo margt gerst að það er löngu kominn tími á nýtt trúnó og annað hláturskast. Björk Jakobs og Selma Björns komu til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,