23:10
Lestin
Hasar og Nýjasta tíska, list og velferð í Klúbbnum

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Örn Gauti er forsprakki og söngvari rokkhljómsveitarinnar HASAR, sem eru nýbúnir að senda frá sér plötu, Nýjasta tíska. Við ræðum pönk, Kalla á þakinu og skeitera á göngutúr um hverfið með Erni Gauta.

Listir og velferð er nýtt nám á meistarastigi í Listaháskóla Íslands og nokkrir nemendur í því námi munu standa fyrir dagskrá á morgun í Klúbb Listahátíðar, sem fer fram undir yfirskriftinni Samfélag, listir og líðan. Alexía Björg kom í Lestina, en hún mun leiða leiki í Klúbbnum á morgun.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,