12:42
Þetta helst
Er hægt að treysta gervigreindinni í samtali um ESB?

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Við höldum áfram að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið - og beinum nú sjónum okkar að áhrifum gervigreindar í upplýsingaöflun og umræðu. Fjölmargar spurningar hafa vaknað um ýmislegt sem tengist Evrópusambandinu og mögulegri aðild Íslands - og borið hefur á því að fjöldi fólks noti gervigreind - ólík spjallmenni - við upplýsingaöflun. Rætt er við Hafstein Einarsson, dósent í tölvunarfræði og sérfræðing í gervigreind, Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, tölfræðing, og Skúla Braga Geirdal, sérfræðing í miðlalæsi.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,