18:00
Kvöldfréttir útvarps
Elkem á Íslandi dregur úr framleiðslu, rússneska herskipið Júrí Ívanov og sérsveitin á Eskifirði

Fréttir

Fréttir

Elkem á Íslandi dregur úr framleiðslu um rúman þriðjung í sumar. Forstjóri Elkem segir aðgerðina ekki bitna á starfsfólki en ekki var ráðið í sumarstörf.

Íslendingur á þrítugsaldri sem saknað var í Taílandi er í haldi innflytjendayfirvalda þar í landi. Fjölskylda hans fékk það staðfest í nótt.

Engar upplýsingar fást um hvar rússneska herskipið Júrí Ívanov heldur sig, en talið er að það sé enn innan íslenskrar efnahagslögsögu.

Dómsmálaráðherra Frakklands hefur falið saksóknurum landsins að fara yfir 70.000 mál tengd kynferðisbrotum á börnum sem tilkynnt hefur verið um síðustu ár. Hvatinn er morð á ungri stúlku á dögunum.

Tíðni mæðradauða á Íslandi hefur hrapað undanfarna áratugi. Hvert tilfelli vegur þó afar þungt, segir fæðingarlæknir.

Einn var handtekinn í sérsveitaraðgerð á Eskifirði í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,