07:03
Morgunvaktin
Nýr sveitarstjóri Borgarbyggðar, Berlínarspjall og HM

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Unnur Brá Konráðsdóttir fyrrverandi alþingismaður og forseti Alþingis er nýráðinn sveitarstjóri í Borgarbyggð. Hún kom í kaffi til okkar, við ræddum um Borgarbyggð og nýja starfið og sitthvað fleira.

Arthúr Björgvin Bollason talaði frá Berlín og fór yfir þýsk málefni: meðal annars þá staðreynd að Þýskaland náði ekki kjöri í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á dögunum - sem þykir talsverð hneisa fyrir Merz kanslara og ríkisstjórn hans.

Og svo var það fótboltinn, eða öllu heldur saga þjóðanna sem keppa á HM sem hefst á fimmtudaginn. Í dag fjallaði Illugi Jökulsson meðal annars um Írak og Íran og Egyptaland og aðeins um Frakkland og líka Erling Haaland.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,