Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hrædd um að dóttir sín slasi sig, ef hún djöglar of þungum hlutum. Hann verður að trufla sýninguna áður en það gerist!
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Kortó, Mýsla og Eik eru álveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta og þar af leiðandi fá aðgang að nýjustu vistvísindunum til geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.
Fjögurra þátta röð um þá sem enn stunda hefðbundinn búskap við innanvert Ísafjarðardjúp. Saga búskapar er rakin og spáð í framtíðina á einlægan og raunsæjan hátt. Tónlistina samdi Mugison en Þóra Arnórsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir önnuðust dagskrárgerð.
Nýir íslenskir heimildarþættir. Viktoría Hermannsdóttir kynnist æskuslóðum viðmælenda sinna í ýmsum bæjum og hverfum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir. Framleiðsla: Pera.
Á Grenivík búa tæplega 400 manns og þar ólst handritshöfundurinn Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir upp. Viktoría Hermannsdóttir röltir með Karen um æskuslóðir hennar á Grenivík.
Sjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty, Sheila og Gideon sinna þjónustustarfi á stóru heimili í Hampstead. Hetty vonar að erfiðleikar fortíðarinnar séu að baki en á nýja vinnustaðnum leynast ýmis leyndarmál. Aðalhlutverk: Isabel Clifton, Dasharn Anderson og Polly Allen.
Fjölskyldu og gamanmynd. Sjö baldin börn ekkjumannsins Cedrics Browns hrekja burt hverja barnfóstruna af annarri, þangað til að hann fær töfrum gædda konu til að gæta þeirra. Meðal leikenda eru Emma Thompson, Colin Firth og Kelly Macdonald.
Sannsöguleg glæpamynd frá 2017 í leikstjórn Aarons Sorkin. Myndin segir frá bandarísku skíðakonunni Molly Bloom sem var eftirlýst af bandarísku alríkislögreglunni fyrir að skipuleggja og halda utan um ólögleg pókerkvöld fyrir útvalda milljónamæringa. Aðalhlutverk: Jessica Chastain, Idris Elba og Kevin Costner. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þriðja þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?