Smástund hentar vel fyrir þau allra yngstu, í hverjum þætti lærum við orð, liti, tölur og tónlist.
Dagskrárgerð: Agnes Wild
Tónlist: Sigrún Harðardóttir
Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.
Emilía uppgötvar að litli rauði hvolpurinn hennar að nafni Kátur hefur vaxið um þrjá metra á einni nóttu.
Ibbi er sjálfsöruggur, forvitinn og hefur ótrúlegan áhuga flest öllu því sem fyrirfinnst í daglegu lífi. Hann er mjög hjálpsamur og hleypur iðulega undir bagga með öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda.
Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.
Vinirnir Begga og Fress leika sér að tölum og leysa saman ýmsar þrautir og gátur.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Hinrik hittir einhvern nýjan á hverjum degi og lendir í ótrúlegustu uppákomum.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
Kærulausi unglingurinn Don Diego þjálfar sig í skylmingum þar sem hann ætlar sér að takast á við það mikla óréttlætti sem samlandar hans eru beittir af ógnarstjórninnisem þar ræður ríkjum. Hann verður framúrskarandi skylmingamaður og tekursér nafnið sem mjög margir þekkja, Zorro.
Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?
Á morgun er hrekkjavaka og Bolli dregur fram galdrabókina hans afa Disks og breytir Bjöllu í allskonar furðuverur.
Hrefna er með hrekkjavökuþema í heimilisfræði og Ólafía og Hekla stelast í tilraunastofuna áður en tími byrjar.
Í þáttunum Húllumhæ er menning og fjör í forgrunni. Við förum í leikhús, hlustum á tónlist, rýnum í bækur og sjáum hvað unga fólkið í landinu er að fást við. Þáttastjórnendur eru Anja Sæberg og Bjarni Kristbjörnsson
Í Húllumhæ: Við hittum Dolores Sigurðardóttur, sem tók þátt í Upptaktinum 2020. Lag hennar og þriggja annarra keppenda Upptaktsins var flutt á kammersveitartónleikum í Hong Kong í desember. Við skellum okkur líka í Tjarnarbíó og hittum Lalla töframann og spjöllum við hann um glænýja sýningu hans, Magic Show. Danskeppni Samfés var haldin síðustu helgi og við sjáum nokkur flott atriði.
Umsjón:
Bjarni Kristbjörnsson
Fram komu:
Dolores Oddrún Sigurðardóttir
Lárus Blöndal Guðjónsson
Handrit og framleiðsla:
Karitas M. Bjarkadóttir
Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Í sófanum að þessu sinni eru þau Einar Bárðarson, Elsa María Jakobsdóttir og Óttarr Proppé.
Berglind Festival fer á stúfana og fjallar um landsliðið.
Emmsjé Gauti frumflytur lagið FOKKA SHITTI UPP.
Fjórða þáttaröð um um ekkjuna Louisu Durell sem flyst búferlum með fjölskyldu sína frá Bournemouth til grísku eyjunnar Korfú um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. Þættirnir eru byggðir á ævisögu Geralds Durrell. Aðalhlutverk: Keeley Hawes, Milo Parker, Josh O'Connor, Daisy Waterstone og Callum Woodhouse.
Útsendingar frá árlegu alþjóðlegu íþróttamóti í Reykjavík.
Bein útsending frá keppni í júdó á Reykjavíkurleikunum.
Útsendingar frá árlegu alþjóðlegu íþróttamóti í Reykjavík.
Bein útsending frá keppni í CrossFit á Reykjavíkurleikunum.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
"Við erum að upplifa þá tíma sem er hvað mest myndið í heiminum. Það eru allir með flotta myndavél í símanum sínum og það eru allir að mynda allt sem gerist. En við höfum áhyggjur af því að þetta verði sá tími sem verður mest myndaður en minnst verður til af myndum af," segir Þórhallur Jónsson eigandi ljósmyndaþjónustunnar Pedrómynda á Akureyri.
Líklega höfum við aldrei verið jafn dugleg við að skrásetja daglegt líf okkar. Við tökum ógrinni af ljósmyndum og erum í stöðugum samskiptum við vini okkar í gegnum samfélagsmiðla og samskiptaforrit. En hvað af þessu varðveitist eftir okkar dag? Ömmur okkar og afar geta iljað sér við að lesa gömul ástarbréf en rómantísk skilaboð á snapchat eða "læk" á instagram er erfiðara að varðveita.
Landinn veltir því fyrir sér í kvöld hvort stafræna byltingin sé mögulega að stela frá okkur minningunum.
Sænskur heimildarþáttur um hármissi hjá karlmönnum. Í þættinum ræða fjórir karlmenn um sorgina sem þeir fylltust þegar þeir áttuðu sig á því að þeir væru að missa hárið.
Fótboltabaráttan heldur áfram og keppast Jamie og félagar um að gera liðið sitt sem sterkast. En með nýjum aðstoðarþjálfara og nýjum liðsmönnum koma ný átök. Bæði á vellinum og utan hans.
Bolli og Bjalla bralla ýmislegt við gerð á þættinum Stundinni okkar.
Bjalla tekur til á skrifborðinu, þar sem amma Tafla er að koma í heimsókn á meðan Bolli er upptekinn við að grúska í galdrabók afa Disks.
Í bókinni rekst Bolli á furðulega þulu og breytir greyið Bjöllu í hund, brúðu og plöntu!
Lottó-útdráttur vikunnar.
Íþróttafréttir.
Grínsketsaþættir þar sem samskipti, íslensk menning, samfélagsmiðlar og allt sem er mannlegt er skoðað í kómísku ljósi. Handrit, aðalhlutverk og leikstjórn er í höndum Kanarí-hópsins, sem samanstendur af nýrri kynslóð grínista sem hafa gert það gott með leiksýningu og sjónvarpssketsum síðustu misseri.
Gamanmynd frá 2006 með Lindsay Lohan í aðalhlutverki. Ashley er ung kona á uppleið og lánið leikur við hana í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. En þegar henni verður á að smella kossi á lánlausan rótara verða umskipti á heppni þeirra og fyrr en varir fer allt í skrúfuna hjá henni með kostulegum afleiðingum. Leikstjóri: Donald Petrie. Meðal leikenda eru Chris Pine, Samaire Armstrong og Bree Turner.
Kvikmynd frá 2015 byggð á sannsögulegum atburðum með Helen Mirren og Ryan Reynolds í aðalhlutverkum. Myndin segir sögu Mariu Altmann, konu á níræðisaldri sem fer í mál við austurríska ríkið í von um að endurheimta málverk sem Gustav Klimt málaði af frænku hennar, en nasistar stálu af heimili fjölskyldu hennar í seinni heimsstyrjöldinni. Leikstjóri: Simon Curtis. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir gamanþættir um einkaspæjarana Luellu Shakespeare og Frank Hathaway sem leysa sakamál í bænum Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.